Bikarmót Vesturlands
Bikarmót Vesturlands verður haldið í Æðarodda, Akransi 4. júlí og hefst stundvíslega kl. 9, að er fram kemur í tilkynningu frá Dreyra.
„Dagskrá:
Forkeppni:
Fjórgangur (V2) opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur (F2) opinn flokkur, ungmennaflokkur
Tölt (T3) barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
Gæðingaskeið
Úrslit:
Fjórgangur V2: opinn flokkur, barnafl., unglingafl. og ungmennafl.
Fimmgangur F2: opinn flokkur, ungmennaflokkur
Tölt barnaflokkur, unglingafl., ungmennafl. og opinn flokkur
100m skeið
Athygli er vakin á því að dagskrá er auglýst með fyrirvara um þátttöku í öllum flokkum.
Skráningar: (opið fyrir skráningu frá 27. júni).
Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að logga sig inn á SportFeng
Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á Mót í valmynd. Áframhaldið rekur sig sjálft, gætið þess bara að fylla í alla stjörnumerkta reiti (einnig félagsaðild þó sjálfgefið félag komi fram), fara svo í Vörukörfu að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.
Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar
koma fram í skráningarferlinu. Athugið að skráningin verður ekki virk fyrr en gjaldkeri hefur
merkt við að greiðsla hafi borist.
Skráningargjald er kr. 2.500 í allar greinar, nema barnaflokk þar er gjaldið 1.500 kr. Síðasti
dagur skráninga er miðvikudagurinn 1.júli á miðnætti og það sama gildir um greiðslu
skráningagjalda. Netfang [email protected] fyrir skráningargjöldin
Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir varðandi skráningu þá getið þið haft samband við:
Belinda Ottosdóttir i sima 8673978,“ segir í tilkynningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH