Stefán býður sig fram til formanns
Stefán Ármannsson formaður hestamannafélagsins Dreyra býður sig fram til formanns LH.
Stefán er 48 ára, búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, og býr í Skipanesi í Hvalfjarðarsveit. Hann hefur setið í varastjórn og æskulýðsnefnd LH síðastliðinn 2 ár og hefur því töluverða reynslu af stjórnarstörfum innan hreyfingarinnar.
Stefán segir fjölmarga hafa hvatt hann til að bjóða sig fram. Hann hefur nú tekið áskoruninni. „Ég ber hagsmuni hestamennskunnar í heild sinni fyrir brjósti mér og vil að menn nái sátt í þeim málum,“ segir Stefán.
Samkvæmt upplýsingum Eiðfaxa hafa amk. 10 aðilar boðið sig fram í aðalstjórn LH. Kosið verður um nýja stjórn á aukaþingi LH sem fer fram næstkomandi laugardag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH