Aðalfundur og uppskeruhátíð Hrossaræktarfélags Biskupstungna
Fjöldi fólks var mætt á svæðið og bauð hrossaræktarfélagið upp á kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi.
Fyrst var tekið til við hefðbundin aðalfundarstörf og að honum loknum var haldin uppskeruhátíð þar sem verðlaunuð voru hæst dæmdu kynbótahross ræktuð af félagsmönnum
Efstu hryssur árins
1)Snilld frá Fellskoti – 6.vetra
Aðaleinkunn: 8,25
Ræktandi: Fellskotshestar ehf
2)Sýr frá Torfastöðum – 7.vetra
Aðaleinkunn: 8,13
Ræktendur: Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir
3)Hildur frá Fellskoti – 7.vetra
Aðaleinkunn: 8,13
Ræktandi: Fellskotshestar ehf
3)Framsókn frá Austurhlíð 2 – 6.vetra
Aðaleinkunn: 8,06
Ræktendur: Trausti Hjálmarsson og Rúnar Björn Guðmundsson
Efstu stóðhestar ársins
1)Rauðskeggur frá Kjarnholtum 1 – 7.vetra
Aðaleinkunn: 8,63
Ræktandi: Magnús Einarsson
2)Álfaskeggur frá Kjarnholtum 1 – 6.vetra
Aðaleinkunn: 8.40
Ræktandi: Magnús Einarsson
3)Hrafn frá Dalsholti – 6.vetra
Aðaleinkunn: 8.17
Ræktendur: Sjöfn Sóley Kolbeins og Sigurður Jensson
Ungstirni ársins
Tromma frá Kjarnholtum 1 fædd – 5.vetra gömul
Aðaleinkunn: 8.02
Ræktandi: Magnús Einarsson
Ræktunarbú ársins í Biskupstungum er Kjarnholt 1, Magnús Einarsson.
Að verðlauna afhendingu lokinni tóku við dýrindis kótelettur. Gestir kvöldsins voru þau Hanna Rún Ingibergsdóttir og Hjörvar Ágústsson í Kirkjubæ en þau kynntu sína starfsemi.
María Birna Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson voru gerð að heiðursfélögum þetta kvöld fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Bæði tvö eru búin að starfa fyrir félagið í háa herrans tíð og enn er verið að leitast eftir þeirra kröftum. Hrossarækt þeirra þarf vart að kynna enda búin að marka spor í íslenska hrossarækt og er það okkur ljúft og skylt að veita þeim smá þakklætisvott fyrir vel unnin störf.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH