Sunnlenskur dagur 18. mars
Reiðhallarsýningin Sunnlenskur Dagur verður haldinn sunnudaginn 18.mars í Rangárhöllinni á Hellu og hefst sýningin kl. 14.
Þemað verður skemmtisýning og hugsað sem góð fjölskylduskemmtun á sunnudegi. Meðal atriða munu t.d. átta hestamannafélög af suðurlandi senda inn atriði í X-faktorkeppni, einnig munu formenn sömu hestamannafélaga keppa í brokki, kappreiðar verða endurvaktar ásamt fjölda annara skemmtiatriða, bæði skemmtiatriði og ræktunaratriði.
Hafi einhverjir áhuga á að vera með í þessari sýningu með t.d. ræktunarbú, afkvæmasýningar eða einstaklingssýningar. Endilega hafa samband við Marjolijn í síma 864-6958 fyrir kl 23:59 föstudagskvöldið 9.mars
Sýninganefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH