Keppt í gæðingakeppni
Fákaflug 2015 verður haldið á Vindheimamelum dagana 25. og 26.júlí n.k. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, 100m, 150m, 250m, gæðingaskeiði og tölti. Sérstök forkeppni, 2-3 inná í einu.
Keppendur skrá sig sjálfir inn á mótið í gegnum á sportfengur.com Skráningum þarf að vera lokið fyrir kl. 22:00 mánudaginn 20.júlí, auk þess sem greiða þarf skráningargjöld fyrir sama tíma. Séu þau ekki greidd eyðast skráningar sjálfkrafa úr kerfinu. Skráningargjald er kr. 4000,- á hverja skráningu í A flokk,B flokk og ungmennaflokk. en í barnaflokk og unglingaflokk eru kr. 2000. Á hverja skráningu í skeiðgreinum er kr.1500.
Mótið hefst kl. 09:00 laugardaginn 25.júlí .
Dagskrá nánar auglýst síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH