Undirbúningur Meistaradeildar Norðurlands hafinn
Undirbúningur Meistaradeilda er hafin en deildinar syðra og nyðra hafa notið gífulega vinsælda meðal hestamanna og áhugamanna um íþróttakeppnina.
Í tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar Norðurlands eru keppnisdagarnir auglýstir en keppnin fer allra jafna fram í Svaðastaðahöll í Skagafirði
Keppnisdagar Meistaradeildar Norðurlands í vetur:
- 30. jan. Úrtaka um 6 laus sæti í deildinni.
- 20. feb. Fjórgangur
- 6. mars. Fimmgangur
- 20. mars. Tölt
- 10. apríl. Skeið og slaktaumatölt.
Bjarni Jónasson sigraði deildina í fyrra eftir að hafa verið meðal efstu manna í flestum greinum keppninnar en knúði svo fram sigur í æsispennandi lokakeppni í skeiði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH