Upprifjunarnámskeið HÍDÍ
„Fyrra endurmenntunarnámskeiðið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal miðvikudaginn 13.febrúar kl.17:00-22:00. Dómarar þurfa skrá sig í gegnum heimasíðu félagsins í síðasta lagi 12.febrúar. Einnig býðst dómurmum að fá útprentaðan leiðara og lög og reglur í A5 stærð og gormað inn fyrir kr. 2.500 — en skráning í „prentpakka“ fer einnig fram í gegnum heimasíðu félagsins og yrði þá afhent á námskeiðinu.
Drög að dagskrá:
kl.17:00
- Pjetur formaður
- Fyrirlestur um ýmis atriði sem vilja koma upp við dómsstörf og skerping á ákveðnum reglum.
- Nýjungar í reglum 2013
Matarhlé - Dæmt af myndbandi og farið yfir
- Skriflegt stöðupróf í Lög og reglum/leiðara
Við viljum minna dómara á að taka með Lög og reglur og leiðara (ef ekki er keypt nýtt).
Einnig er nauðsynlegt að hafa með sér skriffæri,“ segir í tilkynnigu frá stjórn og fræðslunefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH