Miða og borðapantanir verða til 6. janúar.
Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Gullhömrum í Grafarholti 10. janúar næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið.
Viðburðinn er hægt að finna á facebook:
https://www.facebook.com/events/395865530579934/
Hinn þjóðþekkti sjónvarpsmaður Gísli Einarsson verður veislustjóri og svo mun hljómsveitin Rokk halda uppi fjörinu en í henni eru þeir:
Hreimur Örn – gítar og söngur
Pálmi Sigurhjartarson – píanó og söngur
Benedikt Brynleifsson – trommur
Róbert Þórhallsson – bassi
Vignir Snær – gítar og söngur
Þriggja réttar máltíðin verður með glæsilegu móti:
Forréttur – Austurlensk sjávarréttasúpa með karrí og kókos
Aðalréttur – Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
Ábætisréttur – Suðrænn kókosdraumur með berjablöndu og crumble.
Ekki láta þig vanta á eina glæsilegustu uppskeruhátíð til þessa! Fyrstir koma fyrstir fá!
Miðasalan fer fram á [email protected] eða í síma 517-9090
Miða og borðapantanir verða til kl. 18, þriðjudaginn 6. janúar.
Miðar verða afhentir miðvikudaginn 7. janúar í Gullhömrum.
Verð: 9600 kr.
Selt inn á dansleik frá 23.30. Verð 2.500 krónur
Gestir þurfa að senda kvittun á [email protected] og þá verður tekið frá borð á þeirra nafni.
Borðaröðun fer fram þegar miðasölu lýkur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH