Ráslisti fyrir fjórganginn
Hugleikur er skráður til leiks með nýja eiganda sínum, Valdimar Bergstað.
Þá er ráslistinn tilbúinn fyrir fjórganginn í KS-Deildinni sem haldinn verður nk. miðvikudagskvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Keppni hefst kl 20:00. Margir góðir hestar eru skráðir og ber þar kannski hæst sigurvegara síðustu tveggja ára í meistaradeildinni fyrir sunnan, Hugleik frá Galtanesi en nú með nýjan knapa Valdimar Bergstað. Ný í deildina kemur Lilja Pálmadóttir með hinn öfluga fjórgangshest Móa frá Hjaltastöðum. Auk þessara tveggja eru margir athyglisverðir hestar sem gaman verður að fylgjast með.
Ráslisti:
1. Hanna Rún Ingibergsdóttir/ Íbess-Gæðingur– Nótt frá Sörlatungu
2. Teitur Árnason/ Top Reiter– Kúnst frá Ytri-Skógum
3. Barbara Wenzl/Draupnir-Þúfur– Hrafnfinnur frá Sörlatungu
4. Valdimar Bergsstað/ Hrímnir– Hugleikur frá Galtanesi
5. Guðmundur K Tryggvason/ Efri-Rauðalækur-Lífland– Rósalín frá E-Rauðalæk
6. Bjarni Jónasson/ Hofstorfan-66°norður– Roði frá Garði
7. Þorsteinn Björnsson/ Draupnir-Þúfur– Króna frá Hólum
8. Agnar Þór Magnússon/ Efri-Rauðalækur-Lífland– Saga frá Skriðu
9. Þórarinn Eymundsson/ Hrímnir– Taktur frá Varmalæk
10. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir/ Top Reiter– Óði-Blesi frá Lundi
11. Jóhann B. Magnússon/ Íbess-Gæðingur– Mynd frá Bessastöðum
12. Lilja Pálmadóttir/ Hofstorfan-66°norður– Mói frá Hjaltastöðum
13. Fanney Dögg Indriðadóttir/ Top Reiter– Brúney frá Grafarkoti
14. Baldvin Ari Guðlaugsson/ Efri-Rauðalækur-Lífland– Öngull frá E-Rauðalæk
15. Líney M. Hjálmarsdóttir/ Hrímnir– Völsungur frá Húsavík
16. Elvar E Einarsson/ Hofstorfan-66°norður– Gjöf frá Sjávarborg
17. Anna Kristín Friðriksdóttir/ Íbess-Gæðingur– Glaður frá Grund
18. Mette Mannseth/ Draupnir-Þúfur– Verdí frá Torfunesi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH