Aðalfundur Sörla
Vigdís var valin íþróttakona Sörla.
Aðalfundur Sörla var haldinn 30. október. Magnús Sigurjónsson gaf ekki kost á sér sem áframhaldandi formaður Sörla og var því kosinn nýr formaður Páll Ólafsson. Í stjórn eru Ásgeir Margeirsson, Eggert Hjartarson, Hlynur Árnason (nýr), Sigurður Emil Ævarsson, Thelma Víglundsdóttir og Þórunn Ansnes.
Þremur Sörlafélögum var veitt gullmerki Sörla fyrir skjót og afgerandi viðbrögð í sumarferð Sörla þegar einn úr hópnum fór í hjartastopp en það voru þau: Elna Katrín Jónsdóttir, Ómar Ívarsson og Hafliði Þórðarson.
Efnilegasta Ungmenni Sörla: Hafdís Arna Sigurðardóttir
Íþróttamaður Sörla: Eyjólfur Þorsteinsson
Íþróttakona Sörla: Vígdís Matthíasdóttir
Efstu kynbótahross ræktuð af félagsmönnum:
Dan frá Hofi (8,39) ræktandi Eygló Gunnarsdóttir
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum (8,39) ræktandi Helgi Jón Harðarson
Hæst dæmda kynbótahross í eigu Sörlafélaga:
Tálbeita frá Flekkudal (8,47) eigandi Hjördís Árnadóttir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH