Nýr Eiðfaxi kominn út á vefnum
Nýr Eiðfaxi er að koma út á morgun 23. maí. Blaðið er nú þegar komið út á vefnum en að vanda er það fullt af áhugaverðu og fróðlegu efni.
Meðal efnis er athyglisvert viðtal við hjónin á Varmalæk í Skagafirði um fjölbreytta starfsemi þar á búinu og hrossaræktina. Í blaðinu eru tvær greinar sem fjalla um léttleika og hvernig hann næst fram. Þessu efni fylgir í vefútgáfu Eiðfaxa vídeó myndbrot eins og stundum fylgir með í vefútgáfunni.
Vefútgáfan fylgir áskrift að Eiðfaxa en áskrifendur þurfa að skrá sig inn, búa til notendanafn og aðgangsorð, senda það með tölvupóst á [email protected] og er þá opnað fyrir aðganginn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH