Jakob Svavar íþróttamaður Akraness 2019
Jakob Svavar Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður Akraness 2019. Þetta er í annað sinn sem Jakob er efstur í þessu kjöri en hann fékk titilinn í fyrsta sinn árið 2013.
Glæsilegur árangur hjá Jakobi og er ekki síst góð viðurkenning fyrir hestaíþróttina.
Í frétt Skagafrétta þar sem farið er yfir árangur Jakobs á árinu, segir m.a.
Hann er agaður keppnismaður en þó ávallt prúður og til fyrirmyndar. Hann hefur hlotið mörg verðlaun fyrir góða reiðmennsku og prúðmennsku. Jakob sýnir hesta sína af öryggi og hefur fumlaust og létt taumsamband við hrossin sem undirstrikar hæfileika hestsins. Jakob Svavar er fyrirmynd allra þeirra sem vilja ná árangri á vettvangi hestaíþrótta.
Frá þessu var greint á vefnum www.skagafrettir.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH