Landsmótssigur á stefnuskránni
Tryggvi Björnsson á Blönduósi er nú með um 30 hross í þjálfun, mest unghross. „Ég er óskaplega hrifinn af nokkrum þeirra, t.a.m. Sóma frá Hólabaki, undan Óm frá Kvistum. Hann er sammæðra Sigri frá Hólabaki. Einnig bind ég vonir við Sváfni frá Geitaskarði, Stálason. Svo eru önnur að þróast vel og ég veit að það kemur alltaf eitthvað á óvart.“ Hins vegar fer drjúg orka í þjálfun og undirbúning keppnistímabilsins. „Ég vil tefla Blæ frá Miðsitju í íþróttakeppni í ár, bæði í fimmgang og A-flokk. Í framhaldinu stefnum við á A-flokks sigur á Landsmóti á Hólum,“ segir Tryggvi í léttum tón.
Viðtal við Tryggva Björnsson má nálgast í 3. tbl. Eiðfaxa. Lesa má blaðið hér á rafrænu formi. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH