Allt fullt á Svellkaldar!
Þau 100 pláss sem í boði voru á ístöltsmótinu Svellkaldar konur ruku út á fyrsta degi og hefur skráningu nú verið lokað þar sem allt er orðið fullt og þó nokkur fjöldi á biðlista. Góð skráning er í alla flokka og hestakostur frábær. Það stefnir í veislu á ísnum hjá stelpunum og rétt að hvetja hestamenn til að taka laugardaginn 13. mars frá og mæta í Skautahöllina til að berja dýrðina augum.
Mótið hefst kl. 17:15 og miðasala mun fara fram á staðnum. Nánar auglýst þegar nær dregur.
Afskráningar og breytingar á skráningum, ef einhverjar eru, skal senda á netfangið [email protected] eins fljótt og auðið er.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH