Erlingur til Svíþjóðar
Erlingur Erlingsson var um árabil einn fremsti kynbótaknapi landsins en flutti til Noregs fyrir nokkrum árum. Síðasta Landsmót var það fyrsta í tuttugu ár sem Erlingur var ekki knapi á en í samtali við Eiðfaxa fannst honum kominn tími til að taka sér frí frá stórmótum.
Erlingur hefur sýnt þrjú hross yfir níuna fyrir hæfileika, þau Frakk frá Langholti, Tenór frá Túnsbergi og Bringu frá Feti, en samkvæmt ættbókinni hefur hann alls sýnt hross tæplega ellefu hundruð sinnum. Margir tengja Erling helst við frábærar sýningar 4 vetra hrossa en hann sýndi meðal annars Álf frá Selfossi, Björk frá Litlu-Tungu og Hátíð frá Úlfsstöðum í frábærar einkunnir 4 vetra gömul.
Erlingur hefur flutt sig um set og er nú við tamningar í Svíþjóð á búgarðinum Segersgården en þangað er um klukkustundar akstur frá Stokkhólmi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH