Hátíð íslenska hestsins

  • 27. mars 2012
  • Fréttir
Hátíð íslenska hestsins

Dagana 29. mars – 1. apríl fer hátíðin Hestadagar í Reykjavík fram.

 
Hátíðin verður sett í verslun Líflands að Lynghálsi fimmtudaginn 29.mars klukkan 18:00 – 20:00. Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga setur hátíðina, sýnt verður það nýjasta í reiðfatnaði með glæsilegri tískusýningu sem Halldór Gylfason leikari og hestamaður með meiru mun stjórna. Boðið verður upp á léttar veitingar og hver veit nema leynigestur/hestur muni láta sjá sig, allir velkomnir. Hestadagar í Reykjavík eru nú haldnir í annað sinn og framundan er glæsileg dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað áhugavert.
 
Dagskrá Hestadaga í Reykjavík má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link