Suðurlandsdeildin – Niðurstöður úr Fjórgangi
Ný og spennandi keppnisdeild hóf göngu sína í Rangárhöllinni á Hellu í kvöld. Var þetta fyrsta keppniskvöldið af fjórum sem skipulögð eru í vetur. Í kvöld var keppt í fjórgangi.
Keppnisfyrirkomulag sem þetta er skemmtilegt þar sem áhorfendur fá bæði að sjá til reyndra keppnisknapa sem og minna vanra. Úrslit eru svo riðin í báðum flokkum þar sem sex efstu knapar keppa. Það má segja að eftirvætingin hafi verið mikil og höllin þétt setin af áhorfendum.
Eins og gefur að skilja á þessum árstíma, að þá voru knapar misvel undirbúnir og keppnishross ekki öll kominn langt á veg í vetrarþjálfuninni. Glæsilegar sýningar sáust þó á milli.
Jón Páll Sveinsson hefur löngum komið fram með spennandi og vel undirbúinn hross og það varð enginn breyting á því þetta kvöldið. Hann mætti með ungan graðhest, Sesar frá Lönguskák, sem er einungis á sjötta vetur. Sesar þessi er undan Ágústínusi frá Melaleiti og Otursdótturinni Hugdísi frá Lækjarbotnum. Sýning þeirra var góð og allar gangtegundir jafnar og góðar. Jón Páll hélt foyrstunni í gegnum forkeppnina og bar sigur úr býtum í úrslitum.
Í flokki minna vanra lék Janita Fromm sama leik og Jón Páll og vann sigur í úrslitum, eftir að hafa verið efst eftir forkeppni. Hestur hennar heitir Náttfari frá Bakkakoti skörungslegur klárhestur sem hestamenn muna eftir frá því í keppni í barnaflokki á Landsmóti, með hinn unga og knáa Jón Ársæl Bergmann.
Næsta keppnisgrein í Suðurlandsdeildinni er parafimi þriðjudagskvöldið 14.febrúar. Parafimi er ný keppnisgrein, meira má lesa um hana og reglur deildarinnar, á vef Eiðfaxa ef klikkað er hér.
Eiðfaxi mun fylgjast grant með gangi mála í Suðurlandsdeildinni í vetur og óskar Rangárhöllinni og Hestamannafélaginu Geysi til hamingju með skemmtilega Suðurlandsdeild.
Eftirfarandi eru öll úrslit kvöldsins ásamt stigum liðanna.
Staðan í stigakeppni liðanna
1. Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 72,5
2. Krappi ehf 66,5
3. Heimahagi 63
4. IceWear 62,5
5. Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 60
6. Húsasmiðjan 58,5
7. VÍKINGarnir 52,5
8. Hjarðartún 40,5
9.-10. Þverholt-Pula 36
9.-10. Kvistir 36
11. Hlökk ehf 30,5
12. Kálfholt 21,5
Forkeppni Fjórgangur – Atvinnumenn
1 Jón Páll Sveinsson / Sesar frá Lönguskák / Hjarðartún 7,00
2 Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Frægur frá Strandarhöfði / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 6,93
3 Kristín Lárusdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri / IceWear 6,70
4 Guðmar Þór Pétursson / Brúney frá Grafarkoti / Heimahagi 6,63
5 John Sigurjónsson / Evelyn frá Litla-Garði / Heimahagi 6,53
6 Lena Zielinski / Prinsinn frá Efra-Hvoli / Krappi ehf 6,47
7 Jóhann Kristinn Ragnarsson / Þytur frá Stykkishólmi / Þverholt-Pula 6,40
8-11 Sæmundur Sæmundsson / Austri frá Úlfsstöðum / Kvistir 6,37
8-11 Ólafur Þórisson / Galdur frá Miðkoti / Húsasmiðjan 6,37
8-11 Alma Gulla Matthíasdóttir / Neisti frá Strandarhjáleigu / VÍKINGarnir 6,37
8-11 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Kylja frá Árbæjarhjáleigu II / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,37
12-13 Sigurður Sigurðarson / Eldur frá Einhamri 2 / Krappi ehf 6,33
12-13 Hlynur Guðmundsson / Leikur frá Glæsibæ 2 / IceWear 6,33
14 Davíð Jónsson / Ólína frá Skeiðvöllum / Húsasmiðjan 6,30
15 Vignir Siggeirsson / Hátíð frá Hemlu II / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 6,27
16 Hjörtur Magnússon / Þjóð frá Þverá II / Þverholt-Pula 6,17
17-18 Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Lottó frá Kvistum / Kvistir 6,13
17-18 Ingunn Birna Ingólfsdóttir / Þryma frá Ólafsvöllum / Kálfholt 6,13
19 Ólöf Rún Guðmundsdóttir / Sváfnir frá Miðsitju / Hlökk ehf 6,10
20 Hallgrímur Birkisson / Ási frá Merkigarði / Hlökk ehf 6,00
21 Marjolijn Tiepen / Hrafn frá Markaskarði / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 5,93
22 Ísleifur Jónasson / Kæti frá Kálfholti / Kálfholt 5,87
23 Auðunn Kristjánsson / Vörður frá Lynghaga / Hjarðartún 5,70
24 Guðmundur Baldvinsson / Þór frá Bakkakoti / VÍKINGarnir 5,20
Fokeppni fjórgangur – Áhugamenn
1 Janita Fromm / Náttfari frá Bakkakoti / VÍKINGarnir 6,80
2 Hrönn Ásmundsdóttir / Dimmir frá Strandarhöfði / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 6,43
3 Benjamín Sandur Ingólfsson / Hamar frá Hafsteinsstöðum / Krappi ehf 6,20
4-5 Vilborg Smáradóttir / Grunnur frá Hólavatni / IceWear 6,17
4-5 Sarah Maagaard Nielsen / Kátur frá Þúfu í Landeyjum / Húsasmiðjan 6,17
6 Annika Rut Arnarsdóttir / Spes frá Herríðarhóli / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,13
7-8 Sigurlín F Arnarsdóttir / Reykur frá Herríðarhóli / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,10
7-8 Matthías Elmar Tómasson / Austri frá Svanavatni / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 6,10
9 Heiðdís Arna Ingvadóttir / Glúmur frá Vakurstöðum / Hlökk ehf 6,07
10 Halldór Gunnar Victorsson / Von frá Bjarnanesi / Heimahagi 6,03
11 Lea Shell / Eyvör frá Efra-Hvoli / Krappi ehf 5,97
12 Katrín Sigurðardóttir / Von frá Meiri-Tungu 3 / Húsasmiðjan 5,93
13 Eygló Arna Guðnadóttir / Nýr Dagur frá Þúfu í Landeyjum / VÍKINGarnir 5,90
14 Gréta Rut Bjarnadóttir / Kolbakur frá Laugabakka / Hjarðartún 5,83
15 Steingrímur Jónsson / Púki frá Kálfholti / Kálfholt 5,77
16 Guðbrandur Magnússon / Straumur frá Valþjófsstað 2 / IceWear 5,73
17 Hlynur Pálsson / Sörli frá Litlu-Sandvík / Kvistir 5,67
18 Elín Hrönn Sigurðardóttir / Davíð frá Hofsstöðum / Þverholt-Pula 5,63
19 Jóhann Ólafsson / Flóki frá Flekkudal / Heimahagi 5,60
20 Guðbjörn Tryggvason / Álfhildur frá Skáney / Kvistir 5,57
21-22 Ragnheiður Hallgrímsdóttir / Snillingur frá Sólheimum / Hlökk ehf 5,47
21-22 Bjarni Elvar Pétursson / Salka frá Hofsstöðum / Hjarðartún 5,47
23 Theódóra Þorvaldsdóttir / Sproti frá Sauðholti 2 / Þverholt-Pula 5,10
24 Eyrún Jónasdóttir / Maístjarna frá Kálfholti / Kálfholt 4,43
A-Úrslit – Atvinnumenn
1 Jón Páll Sveinsson / Sesar frá Lönguskák / Hjarðarún 7,37
2 Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Frægur frá Strandarhöfði / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 7,07
3 Guðmar Þór Pétursson / Brúney frá Grafarkoti / Heimahagi 6,97
4 Kristín Lárusdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri / IceWear 6,83
5 John Sigurjónsson / Evelyn frá Litla-Garði / Heimahagi 6,73
6 Lena Zielinski / Prinsinn frá Efra-Hvoli / Krappi ehf 6,43
A-Úrslit – Áhugamenn
1 Janita Fromm / Náttfari frá Bakkakoti / VÍKINGarnir 7,13
2 Annika Rut Arnarsdóttir / Spes frá Herríðarhóli / Árbæjarhjáleiga-Herríðarhóll 6,70
3 Hrönn Ásmundsdóttir / Dimmir frá Strandarhöfði / Hemla-Hrímnir-Strandarhöfuð 6,60
4 Benjamín Sandur Ingólfsson / Hamar frá Hafsteinsstöðum / Krappi ehf 6,43
5 Vilborg Smáradóttir / Grunnur frá Hólavatni / IceWear 6,33
6 Sarah Maagaard Nielsen / Kátur frá Þúfu í Landeyjum / Húsasmiðjan 6,27
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH