Félagsmót Léttfeta

  • 10. júní 2011
  • Fréttir
Félagsmót Léttfeta

Félagsmót Léttfeta verður haldið á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki laugardaginn 18. júní og hefst það kl:10:00 á forkeppni í B-flokki.

Skráningu lýkur á fimmtudagskvöldið 16. júní. Skráningar eru hjá Guðmundi á [email protected] og hjá Stefaníu í 847-9158. Skráningagjaldið er 1500 kr. og greiðist inn á reikning félagsins 0310-26-32140, kt.430269-7049. Vinsamlegast setja kennitölu knapa í skýringu og senda staðfestingu á [email protected].

Keppnisgreinar: A og B-flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkar og 100m skeið.
Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hests við skráningu.

Mótanefnd Léttfeta
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link