Jólakvennakvöld í Gusti í kvöld
Minnum á jólakvennakvöldið í veitingasal reiðhallarinnar í Gusti í kvöld, miðvikudaginn 2. des. Húsið opnar kl. 19:30, en dagskrá hefst kl. 20 og fram koma söngvararnir Lára Rúnarsdóttir, Helgi Björnsson og Óskar Pétursson Álftagerðisbróðir. Edda Björgvinsdóttir mun svo lesa upp úr bók Flosa Ólafssonar.
Léttar veitingar í boði Kvennadeildar Gusts og skemmtilegt happdrætti – allar Gustskonur hvattar til að mæta og hafa með sér gesti. Eigum notalega kvöldstund saman í jólastemmingu!
Frítt inn!
Kvennadeild Gusts
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH