Agnar Snorri bjargaði Íslendingum fyrir horn

  • 5. ágúst 2012
  • Fréttir
Norðurlandamótinu í Svíþjóð er lokið. Skandinavar eru komnir á undan í skeiðgreinum, bæði í reiðmennsku og ræktun.

Agnar Snorri Stefánsson bjargaði heiðri íslenska landsliðsins fyrir horn með því að vinna gullið í fimmgangi á Norðurlandamótinu í Eskilstuna í Svíþjóð á Feng frá Staagerup.

Agnar Snorri vann einnig slaktaumatöltið á Feng og allt fram á síðustu stundu leit út fyrir að það yrði eina gull Íslands í fullorðinsflokki. Hefði það einhverntíma þótt saga til næsta bæjar ef „snúrutöltið“ væri eina greinin þar sem Íslendingar ættu möguleika. Agnar rekur hestabúgarð í Danmörku ásamt sambýliskonu sinni Anne Stine Haugen, sem varð heimsmeistari í fjórgangi á Muna frá Kvistum í fyrra. Þau lánuðu sex hesta í íslenska liðið, þar á meðal  Kveik frá Lian, sem Flosi Ólafsson reið á toppinn í tölti ungmenna.  Kveikur er keppnishestur og þjálfaður til margra ára af Önnu Stine.

Fengur er undan Váki frá Brattholti og Jörp frá Egemose, sem er undan Frey frá Flugumýri. Hann er því kominn út af tveimur hulduhestum í íslenska hestakyninu, sem fóru aldrei hátt sem einstaklingar, en lifa góðu lífi í ýmsum afrekshrossum sem ennþá eru að koma undan og út af þeim.

Árangur íslenska liðsins er slakur í heildina tekið. Aðeins einn keppandi komst í A úrslit í tölti fullorðinna, Eyjólfur Þorsteinsson á Losta frá Strandarhjáleigu, sem varð í fjórða sæti með 7,61. Gauðlaug Marín Guðnadóttir á Toppi frá Skarði hlaut silfur í 250 metra skeiði á 22,86 sekúndum, en að öðru leyti komust íslendingar varla á blað í skeiðgreinunum. Hin norsk/íslenska Helena Kroghen Aðalsteinsdóttir, sem keppti fyrir Ísland, náði þó bronsi í gæðingaskeiði ungmenna á Fiðlu frá Þingeyrum.

Áberandi er hve Skandinavar eru orðnir flinkir í skeiðinu og einnig að flest fljótustu hrossin eru ræktuð ytra. Kærkomin undantekning á því er þó fljótasti hesturinn í 250 metra skeiði, Hárekur frá Hákoti, Geislasonur frá Sælukoti, sem hljóp á 21,92 sekúndum.

Sjá má öll úrslit á NM2012 HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link