Dýralæknar ávíttir

  • 22. nóvember 2012
  • Fréttir
Dýralæknafélag Íslands hefur ávítt Björn Steinbjörnsson og Susanne Braun fyrir framgöngu þeirra í hrossapestinni 2010.

Siðnefnd Dýralæknafélags Íslands hefur úrskurðað að Björn Steinsbjörnsson og Susanne Braun hafi brotið 13. grein siðareglna D.Í, sem kveður á um að: Dýralæknir skal auðsýna stéttarbróður drengskap og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum. Honum ber að forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf stéttarbróður.“

Í mars 2011 kærði Sigríður þau Björn og Susanne til siðanefndarinnar fyrir að ganga of langt í hræðsluáróðri í hrossapestinni 2010 og  með því að fullyrða að um alvarlega veirusýkingu væri að ræða án þess að hafa fyrir því sannanir. Við rannsókn hafi komið í ljós sterkar vísbendingar um að orsakavaldurinn væri Streptococcus zooepidemicus.

Í kærunni eru talin upp margvísleg ummæli Björns og Susanne og á það bent að áróður þeirra hafi verið ófaglegur og falið í sér aðför að Sigríði í starfi. Í þá veru að Sigríður hefði ekki vit á því sem hún væri að fást við og væri að vinna gegn heilbrigði íslenska hrossastofnsins. Ennfremur hefðu Björn og Susanne staðið að eða mælt með lyfjagjöf með óskráðu lyfi.

Siðnefnd D.Í. komst að þeirri niðurstöðu að samkvæmt þeim göngum og vitnisburði sem nefndin aflaði sér hafi Björn og Susanne gerst brotleg með framgöngu sinni og ummælum, bæði í óformlegum samtölum og á fundum. Ummælin hafi skaðað heiður Sigríðar Björnsdóttur sem fagmanns og verið til þess fallin að skaða ímynd dýralækna almennt. Brot Björns séu alvarleg og brot Susanne ámælisverð.

Siðanefnd gaf Birni og Susanne frest til 22. októbers síðastliðins til að biðja Sigríði Björndsóttur og félaga í D.Í. opinberlega afsökunar með skriflegri afsökunarbeiðni og birtingu á vef D.Í. www.dyr.is. Samkvæmt upplýsingum frá Dýralæknafélaginu voru viðbrögð Björns þau að hann sagði sig úr félaginu og engin viðbrögð hafa ennþá komið frá Susanne Braun. Sjá má úrskurð siðanefndarinnar og bréf til Björns og Susanne HÉR.

Því má bæta við að enginn vafi leikur á því lengur að það var nýr stofn af bakteríunni Streptococcus zooepidemicus sem var orsakavaldur að hestapestinni 2010 (S Björnsdóttir1, MTG Holden2, V Svansson3, SR Harris2, K Webb4, C Robinson4, KF Steward4, N Wright4, R Paillot4, JR Newton4, E Gunnarsson3, AS Waller4 Streptococcus zooepidemicus: more than just an opportunist? The 9th International Conference on Equine Infectious Diseases (EID IX)   October 21-26, 2012, Lexington, Kentucky. In: Journal of Equine Veterinary Science Volume 32. Number10S, October 2012. ISSN:0737-0806.)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link