Ráslisti í fjórgangi – Meistaradeildin í Hestaíþróttum
Dregið var í rásröð í Meistaradeildinni í hestaíþróttum í kvöld. Keppnin fer fram í TM höllinni í Víðidal á fimmtudaginn. Keppni hefst klukkan 19:00.
Ljóst er á knapa- og hestakosti að keppnin ætti að verða spennandi og erfitt að spá fyrir um hver ber sigur úr býtum.
Af þeim sjö pörum sem komust í úrslit í fyrra eru aðeins tvö skráð til leiks en það eru Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Sproti frá Enni sem urði í fimmta sæti og Siguroddur Pétursson og Steggur frá Hrísdal sem urðu í sjöunda sæti.
Svona fór fjórgangurinn árið 2019.
| Sæti | Knapi | Hestur | Lið | Aðaleinkunn | |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Árni Björn Pálsson | Flaumur frá Sólvangi | Top Reiter | 7.77 | |
| 2 | Ásmundur Ernir Snorrason | Frægur frá Strandarhöfði | Auðsholtshjáleiga / Horse export / Strandarhöfuð | 7.67 | |
| 3 | Jakob Svavar Sigurðsson | Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | Eques / Kingsland | 7.53 | |
| 4 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Óskar frá Breiðstöðum | Ganghestar / Austurás | ||
| 5 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Sproti frá Enni | Auðsholtshjáleiga / Horse export / Strandarhöfuð | 7.27 | |
| 6 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Kjarval frá Blönduósi | Top Reiter | 7.23 | |
| 7 | Siguroddur Pétursson | Steggur frá Hrísdal | Hrímnir / Export hestar | 7.00 |
Liðabreytingar hafa orðið nú frá því að kynning á liðum fór fram. Daníel Jónsson tekur sæti Matthíasar Leó í liði Top Reiter og Matthías tekur sæti Ólafs Andra í Eques / Kingsland.
Ráslistin í fjórgangi
| Nr. | Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | Teitur Árnason | Arthúr frá Baldurshaga | Top Reiter |
| 2 | Hulda Gústafsdóttir | Sesar frá Lönguskák | Hestvit / Árbakki |
| 3 | Helga Una Björnsdóttir | Hnokki frá Eylandi | Hjarðartún |
| 4 | Flosi Ólafsson | Frami frá Ferjukoti | Hrímnir / Export hestar |
| 5 | Guðmundur Björgvinsson | Jökull frá Rauðalæk | Eques / Kingsland |
| 6 | Sylvía Sigurbjörnsdóttir | Kolbakur frá Morastöðum | Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð |
| 7 | Elin Holst | Frami frá Ketilsstöðum | Gangmyllan |
| 8 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Glymjandi frá Íbishóli | Ganghestar / Austurás |
| 9 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Kría frá Kópavogi | Hestvit / Árbakki |
| 10 | Jakob Svavar Sigurðsson | Hálfmáni frá Steinsholti | Hjarðartún |
| 11 | Matthías Leó Matthíasson | Taktur frá Vakurstöðum | Eques / Kingsland |
| 12 | Siguroddur Pétursson | Steggur frá Hrísdal | Hrímnir / Export hestar |
| 13 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Vákur frá Vatnsenda | Ganghestar / Austurás |
| 14 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Sproti frá Enni | Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð |
| 15 | Árni Björn Pálsson | Hátíð frá Hemlu II | Top Reiter |
| 16 | Sigurður Sigurðarson | Rauðka frá Ketilsstöðum | Gangmyllan |
| 17 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | Hestvit / Árbakki |
| 18 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Grímur frá Skógarási | Eques / Kingsland |
| 19 | Telma Tómasson | Baron frá Bala 1 | Ganghestar / Austurás |
| 20 | Ásmundur Ernir Snorrason | Dökkvi frá Strandarhöfði | Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð |
| 21 | Þórarinn Ragnarsson | Leikur frá Vesturkoti | Hjarðartún |
| 22 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Askur frá Gillastöðum | Top Reiter |
| 23 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | Hrímnir / Export hestar |
| 24 | Bergur Jónsson | Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum | Gangmyllan |
Ljósmyndin sem fylgir fréttinni er af Árna Birni Pálssyni og Flaumi frá Sólvangi sem stóðu efstir í fjórgangi í fyrra. Ljósmyndina tók Bjarney Anna Þórsdóttir á Íslandsmótinu
„Núna er þetta bara upp á við“
Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni