Sigurvegari í ágiskunarleik Eiðfaxa!

  • 1. febrúar 2020
  • Fréttir
Austurland sigraði í landsfjórðungakeppninni og Tjorven Kanopka vann sér inn ársmiða á Meistaradeild!

Ágiskunarleikur Eiðfaxa hóf göngu sína fyrir fyrsta kvöldið í Meistaradeildinni, þegar keppt var í fjórgangi. Fyrir þann sem flest stig myndi hljóta var í boði ársmiði á Meistaradeildina.

Fjórir aðilar tóku þátt, einn fyrir hvern landsfjórðung en allir gátu tekið þátt í leiknum með því að skrifa spá um sex efstu knapa að úrslitum loknum í ummæli á Facebook síðu Eiðfaxa.

Við ætlum að vera með þennan leik í gangi fyrir hvert kvöld í Meistaradeildinni og alltaf verða einhverjir vinningar í boði fyrir þann sem flest stig hlýtur.

Reglurnar eru einfaldar.

15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara

10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti

5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum

Í landsfjórðungakeppninni fór það þannig að Austurland bar sigur úr býtum en Einar Ben Þorsteinsson frístundabóndi hlaut flest stig alls 25 en það var Tjorven Kanopka sem hlaut flest stig þetta kvöldið eða alls 30. Fær hún því að launum ársmiða á Meistaradeildina.

Hennar spá var eftirfarandi

  1. Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni – 15 stig
  2. Árni Björn og Hátíð – 5 stig
  3. Elin Hols og Frami – 10 stig
  4. Siguroddur og Steggur
  5. Þórdís Erla og Sproti
  6. Bergur Jónsson og Álfgrímur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link