Nýjar aðildarþjóðir og breytingar á kynbótakerfinu samþykktar

  • 3. febrúar 2020
  • Fréttir
Um helgina fór fram ársþing FEIF

Það var Landssamband Hestamannafélaga sem hélt utan um ársþingið í samstarfi við FEIF. Meðal þess sem LH stóð fyrir var vel heppnuð kvöld dagskrá á föstudeginum, þar sem ný aðstaða í Sumarliðabæ var skoðuð. Í Rangárhöllini fór fram kynning á gæðingafimi og einnig Landsmóti 2020.

Á heimasíðu FEIF má nálgast ýmsar fréttir af þinginu en meðal þeirra eru þær gleðifréttir að Ungverjaland og Ástralía hafa bæst í hóp aðildarþjóða og eru aðildarþjóðirnar því orðnar 22.

Doug Smith og Jón Baldur Lorange hlutu heiðursviðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í þágu íslenska hestsins og íslandshesta heimsins. Doug Smith hefur tekið að sér mörg störf innan Feif og m.a. verið leiðtogi keppnismála (e. FEIF Director of Sport). Jón Baldur hefur haldið utan um hið magnaða gagnasafn Worldfeng í mörg ár, sem er ómissandi hverjum þeim sem ræktar íslenska hesta.

Inge Kringeland mun áfram gegna starfi ræktunarleiðtoga Feif, Silke Feuchthofen stýrir fræðslumálum og Jean-Paul Balz stýrir keppnismálum. Þá var Alexandra Montan kosin ný í stjórn.

Suzan Beuk frá Þýskalandi var útnefnd reiðkennari/þjálfari ársins eftir netkosingu sem fjallað var um á Eiðfaxa fyrr á árinu. Fulltrúi Íslands í því kjöri var Ragnheiður Samúelsdóttir.

Tillögur um breytingar á kynbótakerfinu voru samþykktar en Þorvaldur Kristjánsson hefur kynnt þær breytingar á undanförnum misserum. Meðal þeirra eru ný fjórgangseinkunn og breytingar á vægisstuðlum.

Þær lög og reglur sem voru samþykktar á þinginu gilda með og frá 1.apríl.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link