Lífið hjá hestamannafélögum
Haustferð, folaldasýning og Uppskeruhátíðir eru auglýstar hjá hestamannafélögunum í vikunni. Félögin eru óðum að setja inn dagskrár vetrarins:
- Þjálfi ætlar að halda námskeið með Mette Mannseth laugardagana 26.nóvember, 7.janúar, 4.febrúar og 17.mars í Torfunesi, Suður-Þingeyjarsýslu.
- Stígandi stendur fyrir reiðnámskeiði fyrir börn á Varmalæk 1 föstudaginn 11. og laugardaginn 12 nóvember. Kenndir verða 4 verklegir tímar og 1 bóklegur, og eru hestar til afnota á staðnum.
- Haustferð Æskulýðsnefndar Smára verður farin föstudaginn 11. nóvember nk. Heimsótt verða valin hrossaræktarbú og tamningastöðvar í Árnessýslu. Þar fá krakkarnir fræðslu og sýnikennslu auk þess að skoða aðstöðu hesta og manna.
- Fjáröflunarnefnd Léttfeta seðja svanga maga í nóvember til að fjármagna ný eldhústæki í félagsheimili þeirra, Tjarnabæ. Föstudaginn 11. nóvember kl. 18-19:30 verður boðið upp á nokkrar útfærslur á hrossakjöti, kaffi og rússur á eftir.
- Uppskeruhátíð Harðar verður haldin í Harðarbóli 16. nóvember kl. 18-20. Dagskrá: Setning, kennarar kynna námskeið vetrarins, Pizza, Verðlaunaafhending.
- Uppskeruhátíð Fáks verður haldin laugardaginn 26. nóvember. Veisla, skemmtiatriði og verðlaunaafhendingar.
- Folaldasýning verður á vegum Hrossaræktarsambands Dalamanna í Nesoddahöllinni laugardaginn 12. nóvember og hefst kl. 14 að er fram kemur hjá Glað. „Keppt verður í flokki hryssu- og hestfolalda. Áhorfendur munu velja folald sýningarinnar. Skráningarfrestur er til föstudagsins 11. nóvember og skráningargjald á folald er 1.000 kr. Fram þarf að koma eigandi, nafn, uppruni, litur, kyn, móðir og faðir. Skráningar sendist á netfangið [email protected] eða í síma 661 0434. Ókeypis aðgangur er á folaldasýninguna og því kjörið tækifæri að skoða framtíðargæðinga Dalamanna.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH