Falleg hryssa með virkjamikla framgöngu
Flokkur sjö vetra og eldri hryssna var stærsti flokkur í ár en alls voru sýndar 294 hryssur. Efsta hryssan í þessum flokki í ár og einnig á Landsmóti varð Þota frá Prestsbæ, undan Orra frá Þúfu og Þoku frá Hólum. Hún lék því eftir árangur alsystur sinnar, Þóru frá Prestsbæ, sem varð efst í þessum flokki á Landsmóti 2011 á Vindheimamelum og einnig móður sinnar sem stóð efst á Landsmóti 2002. Umsögn um Þotu hljóðar svo; „Þota er afar falleg og fínleg hryssa í byggingu og þá sópar að henni í reið með mikla skreflengd á öllum gangi og virkjamikla framgöngu.“ Næst á eftir henni er Nípa frá Meðalfelli en Nípa var eina hryssan í ár 2016 eiðfaxi.is 65 Ræktun Gísli Gíslason og Kolskeggur frá Kjarnholtum sem hlaut yfir 9,0 fyrir hæfileika en hún fékk 9,05 á sýningunni í Spretti í vor. Þriðja hryssan í röðinni er svo Hnit frá Koltursey en Hnit er undan Stála frá Kjarri og Kjarnorku frá Sauðárkróki.
AE Nafn Faðir Móðir
8.81 Þota Prestsbæ Orri Þúfu í Landeyjum Þoka Hólum
8.70 Nípa Meðalfelli Orri Þúfu í Landeyjum Esja Meðalfelli
8.64 Hnit Koltursey Stáli Kjarri Kjarnorka Sauðárkróki
8.61 Náttfríður Kjartansstöðum Sædynur Múla Sál Kjartansstöðum
8.56 Undrun frá Velli Klettur Hvammi Unnur Velli II
8.52 Katla Ketilsstöðum Gaumur Auðsholtshjáleigu Ljónslöpp Ketilsstöðum
8.51 Erla Skák Álfur Selfossi Nína Búlandi
8.48 Edda Egilsstaðabæ Gaumur Auðsholtshjáleigu Yrja Skálmholti
8.48 Garún Eystra-Fróðholti Stáli Kjarri Glíma Bakkakoti
8.47 Fura Fákshólum Glotti Sveinatungu Djásn Ytra-Skörðugili
8.47 Ósk frá Langholti II Lykill Langholti II Fjóður Langholti II
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH