Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks
Eyjólfur Ísólfsson tamningameistari verður heiðursgestur á Degi reiðmennskunnar sem haldinn er í tilefni Stórsýningar Fáks þann 28. mars í TM-reiðhöllinni í Víðidal. Hann mun halda kennslusýningu ásamt nemendum sínum og er um að ræða fágætan viðburð sem enginn hestamaður má láta framhjá sér fara, enda einstakt tækifæri að fá innsýn í vinnubrögð meistarans. Tamningameistarinn Eyjólfur hefur yfirburða þekkingu á íslenska hestinum, var um árabil yfirreiðkennari Háskólans á Hólum og var nýverið ráðinn til að kenna reiðmennsku við Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar.
Fjöldi annarra atriða verður á Degi reiðmennskunnar, dagskráin verður þétt og stendur yfir frá morgni og frameftir degi. Stórskotalið í íslandshestaheiminum kemur fram en auk Eyjólfs verður sýnikennsla meðal annars í höndum Mette Mannseth, yfirreiðkennara Háskólans á Hólum, Antons Páls Níelssonar, reiðkennara, og reiðkennaraefna Hólaskóla. Þá kemur fram í sýningu heimsmeistarinn í tölti, Jóhann Skúlason, afreksknapinn Árni Björn Pálsson og einnig margfaldur heimsmeistari, hin danska Julie Christiansen, auk annarra. Glæsileg dagskrá verður síðan á Stórsýningu Fáks um kvöldið, með fjölbreyttum atriðum.
Kennslusýningardagur, Dagur reiðmennskunnar, var haldinn í fyrsta sinn í Fáki í 2019. Gríðarlegur áhugi var fyrir viðburðinum, sýnendur stóðu sig frábærlega og mæting áhorfenda fór fram úr björtustu vonum. Úr varð spennandi menntadagur fyrir alla hestamenn og leyndi áhuginn sér ekki því fólk tók að streyma inn í TM-reiðhöllina þegar að morgni. Sátu margir allan daginn, hlýddu á frábær erindi, horfðu á magnaðar kennslusýningar og hlutu að launum ógrynni upplýsinga um þjálfun reiðhestsins. Ljóst er að Dagur reiðmennskunnar í Fáki er kominn til að vera og eru allir hjartanlega velkomnir á einn stærsta hestaviðburð ársins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH