Meistaradeild Líflands og æskunnar – Védís Huld fagnaði sigri

  • 9. febrúar 2020
  • Fréttir
HRÍMNIS fjórgangurinn í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram í Samskipahöllinni í Spretti í dag

 Tæplega fjörutíu glæsilegir fulltrúar ungu kynslóðarinnar á aldrinum 13-18 ára kepptu í krefjandi keppni.

 

Keppnin gekk afar vel fyrir sig en það er alkunna að unga fólkið er stundvísast hestamanna og prúðast.

 

Eftir forkeppnina stóð Védís Huld Sigurðardóttir efst á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum með 7,13. Skammt unda kom systir hennar Glódís Rún Sigurðardóttir á Glymjanda frá Íbíshóli með 6,93 og þriðji Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Freyði frá Leysingjastöðum II með 6,63.

 

Tveir knapar tóku þátt í B-úrslitum með sömu einkunn. Það voru þau Kristófer Darri Sigurðsson á Verði frá Vestra-Fíflholti og Eygló Hildur Ásgeirsdóttir á Sögu frá Dalsholti. Keppnin þeirra á milli varð hörð og skemmtileg en á endanum fór það svo að Kristófer Darri hafði sigur. Samkvæmt reglum deildarinnar hlaut hann þó ekki sæti í A-úrslitum enda afar stuttur tími milli atriða á móti sem tók aðeins rúma fjóra tíma.

 

Védís Huld gaf ekkert eftir þegar komið var í A-úrslitin og hélt forystunni allt til enda og hlaut 7,30 í einkunn fyrir vel heppnaða sýningu. Glódís Rún hélt sömuleiðis sínu sæti og varð önnur með 7,13 og Benedikt Ólafsson hreppti þriðja sætið á Biskupi sínum með 6,93.

 

Lið Hrímnis í deildinni tók forystu í liðakeppninni og er staðan í henni svona eftir fyrsta mót:

Hrímnir 34,5
Top Reiter 11,5
Hofsstaðir/Sindrastaðir 9,5
Stafholt 4,5
Klettur 1,5

 

 

Þeir sem hlutu stig í einstaklingskeppninni voru þessir:

Védís Huld Sigurðardóttir 12 Hrímnir
Glódís Rún Sigurðardóttir 10 Hrímnir
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal 8 Hofsstaðir/Sindrastaðir
Hulda María Sveinbjörnsdóttir 7 Top Reiter
Sigrún Högna Tómasdóttir 4,5 Hrímnir
Signý Sól Snorradóttir 4,5 Top Reiter
Sara Dís Snorradóttir 4,5 Stafholt
Benedikt Ólafsson 4,5 Hrímnir
Kristófer Darri Sigurðsson 1,5 Klettur
Eygló Hildur Ásgeirsdóttir 1,5 Hofsstaðir/Sindrastaðir

 

Á næsta móti verður svo keppt í fimmgangi. Það mót fer fram 23. febrúar  í Samskipahöllinni.

 

V1 fjórgangur – allar niðurstöður

Forkeppni
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Sleipnir 7,13
2 Glódís Rún Sigurðardóttir Glymjandi frá Íbishóli Sleipnir 6,93
3 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Freyðir frá Leysingjastöðum II Þytur 6,63
4 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Garpur frá Skúfslæk Sprettur 6,47
5-8 Signý Sól Snorradóttir Rektor frá Melabergi Máni 6,37
5-8 Sara Dís Snorradóttir Gustur frá Stykkishólmi Sörli 6,37
5-8 Sigrún Högna Tómasdóttir Marta frá Húsavík Smári 6,37
5-8 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga Hörður 6,37
9-10 Kristófer Darri Sigurðsson Vörður frá Vestra-Fíflholti Sprettur 6,33
9-10 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Saga frá Dalsholti Fákur 6,33
11 Jón Ársæll Bergmann Hrafndís frá Ey I Geysir 6,30
12-13 Elín Þórdís Pálsdóttir Ópera frá Austurkoti Sleipnir 6,27
12-13 Glódís Líf Gunnarsdóttir Magni frá Spágilsstöðum Máni 6,27
14 Matthías Sigurðsson Caruzo frá Torfunesi Fákur 6,20
15 Sigurður Baldur Ríkharðsson Ernir  Tröð Sprettur 6,17
16 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Vídd frá Lækjamóti Þytur 5,97
17 Guðný Dís Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ Sprettur 5,93
18 Þorvaldur Logi Einarsson Saga frá Miðfelli 2 Smári 5,90
19-20 Þórey Þula Helgadóttir Bragur frá Túnsbergi Smári 5,77
19-20 Sigurður Steingrímsson Eik frá Sælukoti Geysir 5,77
21 Natalía Rán Leonsdóttir Strákur frá Lágafelli Hörður 5,70
22 Erika J. Sundgaard Viktoría frá Miðkoti Geysir 5,60
23 Arndís Ólafsdóttir Styrkur frá Kjarri Glaður 5,57
24-25 Hrund Ásbjörnsdóttir Ábóti frá Söðulsholti Fákur 5,53
24-25 Diljá Sjöfn Aronsdóttir Kristín frá Firði Sprettur 5,53
26-27 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snillingur frá Sólheimum Geysir 5,50
26-27 Hekla Rán Hannesdóttir Krás frá Árbæjarhjáleigu II Sprettur 5,50
28-29 Bergey Gunnarsdóttir Hátíð frá Litlalandi Ásahreppi Máni 5,47
28-29 Jónas Aron Jónasson Herdís frá Hafnarfirði Sörli 5,47
30 Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir Vörður frá Eskiholti II Sprettur 5,33
31-32 Anna María Bjarnadóttir Bragabót frá Bakkakoti Geysir 5,27
31-32 Kristján Árni Birgisson Karmur frá Kanastöðum Geysir 5,27
33 Viktoría Von Ragnarsdóttir Gustur frá Yztafelli Hörður 5,13
34 Sveinn Sölvi Petersen Prins frá Njarðvík Fákur 5,07
35 Arnar Máni Sigurjónsson Blesa frá Húnsstöðum Fákur 4,90
36 Lilja Dögg Ágústsdóttir Sigur frá Sperðli Geysir 4,83
37 Patrekur Jóhann Kjartansson Stjarni frá Búð Geysir 4,33
38 Kristín Hrönn Pálsdóttir Gaumur frá Skarði Fákur 0,00
B úrslit
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
9 Kristófer Darri Sigurðsson Vörður frá Vestra-Fíflholti Sprettur 6,43
10 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Saga frá Dalsholti Fákur 6,40
A úrslit
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Sleipnir 7,30
2 Glódís Rún Sigurðardóttir Glymjandi frá Íbishóli Sleipnir 7,13
3-4 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga Hörður 6,93
3-4 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Freyðir frá Leysingjastöðum II Þytur 6,93
5 Sigrún Högna Tómasdóttir Marta frá Húsavík Smári 6,50
6 Signý Sól Snorradóttir Rektor frá Melabergi Máni 6,43
7 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Garpur frá Skúfslæk Sprettur 6,27
8 Sara Dís Snorradóttir Gustur frá Stykkishólmi Sörli 6,20

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link