Reiðnámskeið með Benedikt Líndal

  • 10. febrúar 2020
  • Fréttir

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn í eðli og atferli hrossa og nái hæfni til að beita viðurkenndum aðferðum í reiðmennsku. 

Námskeiðið er í bland bókleg kennslu þar sem farið verður yfir helstu undirstöðuatriði reiðmennskunnar og verkleg kennsla þar sem hver nemandi vinnur með eigið hross, bæði í pörum og sem einstaklingur. Inn á milli verður sýnikennsla til að styðja og tengja saman mismunandi efnisþætti.

Fyrri dag námskeiðsins vinna nemendur í pörum í 50 mín í senn, hvert par tvisvar yfir daginn. Seinni daginn er unnið með einstaklingstíma í 40 mín í senn. Inn á milli er bókleg kennsla.

Fjöldi nemenda verður takmarkaður og því ættu nemendur að fá mikla beina þjálfun en námskeiðið er byggt þannig upp að nemendahópurinn sé á staðnum allan námskeiðstímann. Hver nemandi mætir með eitt hross og tilsvarandi reiðtygi.

Kennsla: Benedikt Líndal tamningameistari

Tími: Lau. 15. feb, kl. 9:00-18:00 og sun. 16. feb, kl. 9:00-17:00 hjá LbhÍ á Miðfossum í Borgarfirði.

Verð: 33.000kr

Skráning hér

Reidnamskeid

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link