Reglur um val á knapa ársins
Valnefnd LH sem sér um að tilnefna og velja knapa ársins hefur af gefnu tilefni birt starfsreglur sínar á vef Landssambands hestamannafélaga. Tilnefningar fyrir árið 2012 sem birtar voru nýlega ollu nokkru fjaðrafoki en margir telja augljóst að knapar í fremstu röð hafi verið sniðgengnir.
Ekki eru færð sérstök rök fyrir einstaka tilnefningum á vef LH, og heldur ekki fyrir því hvers vegna knapar í fremstu röð eru ekki tilnefndir. Enda eru nefndarmenn bundnir trúnaði um allt er lýtur að valinu. Ýmsir reyna hins vegar að spá í spilin. Hestablaðið hefur heimildir fyrir því að Daníel Jónsson og Þórður Þorgeirsson séu ekki tilnefndir sem kynbótaknapar vegna þess að báðir fengu á sig ógildingu kynbótadóms vegna áverka sem hross er þeir voru knapar á hlutu í sýningu. Samkvæmt sömu heimildum er hefur sú vinnuregla verið tekin upp í nefndinni að líta sérstaklega á áverkaskráninga við knapavalið. Vegna þess að það þykir hvorki íþróttamannsleg fyrirmynd né hestaíþróttinni til framdráttar að keppa á meiddum hestum.
Starfsreglur nefdarinnar eru svohljóðandi:
1 Nefndin skal þannig skipuð: Formaður skipaður af stjórn LH, einn fulltrúi frá GDLH, einn fulltrúi frá HÍDÍ, einn fulltrúi frá keppnisnefnd LH, einn fulltrúi frá Félagi tamningamanna, og einn starfandi kynbótadómari sem tilnefndur er úr þeirra hópi. Einn til tveir fulltrúar tilnefndir frá fjölmiðlum í hestamennsku. (Hestablaðamenn teljast þeir sem fjalla um og fylgjast með keppni og hestamennsku megnið af árinu. Þeir þurfa að hafa sýnt fram á að þeir hafi þekkingu og innsýn í reiðmennskulistina og fylgist með reiðmennsku og keppni af áhuga. Einnig að þeir séu hlutlægir í skrifum sínum og fjalli um viðfangsefnið á gagnrýninn, en sanngjarnan hátt.)
2 Nefndin er á ábyrgð stjórnar LH og skal skipa hana til eins árs í senn. Skilar hún af sér tillögu að vali á knöpum ársins til stjórnar LH tvær vikur fyrir Uppskeruhátíð hestamanna hverju sinni. Fundargerðir og skýrslur nefndarinnar skulu varðveittar á skrifstofu LH. Nefndin er bundin af ákvörðun stjórnar um hve marga knapa skuli tilnefna og heiðra hverju sinni. Starfsmaður LH sér um að útvega gögn frá knöpum, sem nefndin gerir skrá um, um keppnisárangur á árinu.
3 Valdir skulu: Íþróttaknapi ársins, Skeiðknapi ársins, Gæðingaknapi ársins, Kynbótaknapi ársins, Efnilegasti knapi ársins, og Knapi ársins. Tilnefndir skulu fimm knapar í hverjum flokki. Þá eru, þegar tilefni þykir til, veitt sérstök heiðursverðlaun. Þau eru veitt eldri hestamanni/konu fyrir framlag sitt til hestamennsku í sinni víðustu mynd.
4 Við val á knöpum ársins skal tekið tillit til árangurs á árinu: Ástundunar, prúðmennsku og íþróttamannlegrar framkomu innan vallar sem utan, og reglusemi. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri á sviði reiðmennsku og frammistaða hans sé álitin reiðmennskunni til framdráttar. Hvort sem um er að ræða eitt afgerandi afrek, eða frábæran árangur í mörgum greinum á mörgum mótum.
Kynbótaknapi, horft skal meðal annars til ungra og efnilegra knapa sem sýna háttvísi tilþrif og frábæra reiðmennsku í kynbótasýningum. Efnilegasti knapinn skal valinn úr ungmennaflokki, en sé það ekki nokkur kostur að tilnefna ungmenni skal litið til unglingaflokks. Sérstaklega skal höfð að leiðarljósi fyrirmynd fyrir unga reiðmenn í einu og öllu. Knapi getur aðeins hlotið þennan titil einu sinni.
5 Við val þeirra sem viðurkenningar hljóta skal gaumgæfa árangur jafnt hér heima sem erlendis (WR og stórmót). Nefndin þarf að rökstyðja hverja tilnefningu. Nefndarmenn eru bundnir trúnaði um allt sem rætt er innan nefndarinnar og starfar hún fyrir stjórn LH eingöngu. Nefndarinnar er ekki getið á heimasíðu LH og ekki er gefið upp hverjir sitja í nefndinni. Hún er kölluð saman af formanni eins oft og þurfa þykir. Nefndin skal koma með tillögur að kynningu knapavals til stjórnar svo og ef henni finnst þörf á breytingum varðandi vinnulag nefndarinnar .
6 Sú ræktun sem skilar athyglisverðasta árangri á ræktun hrossum í keppni á vegum LH og FEIF hlýtur titilinn Ræktun keppnishrossa 2012 , þ.e. fyrir frábæran árangur hrossa í keppni. Til verðlaunanna skulu telja allar þær keppnisgreinar sem keppt er í undir merkjum LH og FEIF. Litið skal til árangurs nýliðins keppnistímabils hér heima og erlendis. Ræktandinn hlýtur titilinn „Ræktun keppnishrossa LH 2012“ og koll af kolli einnig til varðveislu í eitt ár og nafn sitt á heiðurskjöld sem veittur verður í 10 ár og síðan varðveittur á sögusafni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH