Frakkur á norska grund

  • 14. nóvember 2012
  • Fréttir
Frakkur á norska grund

Það sem af er ári hafa 58 fyrstu verðlauna hross yfirgefið landið, 38 hestar og 20 hryssur og er á meðal þeirra margir nafntogaðir keppnishestar og gæðingar sem fóru mikinn á Landsmóti í sumar og er því greinilegt að keppnismenn erlendis eru að bæta hestakost sinn, nú ári fyrir heimsmeistaramót. Er greinilegt að mótið er mikill sölugluggi, í fljótu bragði virðast amk. fimm stóðhestar sem kepptu í A-flokki gæðinga meðal þeirra sem hafa skipt um eigendur – því auk silfurverðlaunahafans Fláka frá Blesastöðum 1A hefur Vafi frá Ysta-Mói, Stáli frá Ytri-Bægisá I og Gígur frá Hólabaki farið utan.

 
Sá hestur sem hefur fengið hæsta aðaleinkunn í kynbótadómi er Frakkur frá Langholti, en hann fékk 8,68 þegar hann varð í 2. sæti í elsta flokki stóðhesta árið 2011, þar af 9,03 fyrir kosti, einkunnina 9,5 fyrir tölt og vilja og geðslag og 9 fyrir hægt tölt, brokk, skeið og fegurð í reið. 
 
Þetta hestagull vakti síðan mikla athygli í A-flokks gæðinga á Landsmóti í sumar undir Atla Guðmundssyni þegar þeir urðu næstefstir í forkeppni flokksins með 8,71 í einkunn. Hins vegar urður það mikil vonbrigði þegar Frakkur missti skeifu í sýningu sinni í milliriðli og blandaði sér því ekki í úrslitabaráttuna.
 
Frakkur er undan Vilmundi frá Feti og Spá frá Akureyri og ræktendur hans eru Viðja Hrund Hreggviðsdóttir og Erlingur Erlingsson.
Frakkur fór utan í byrjun september en nýr eigandi hans norski hestamaðurinn Tom Espen Wenås en hann hefur verið ötull keppnismaður og verið m.a. í landsliði Norðmanna á Heimsmeistaramótum. 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link