Vekringaat í Meistaradeild
Þorvaldur Árni Þorvaldsson tekur Kiljan frá Steinnesi til kostanna á Kaldármelum 2009.
Skeiðkeppni í Meistaradeild í hestaíþróttum verður framin á Ármóti á Rangárvöllum á morgun, laugardaginn 24. mars. Keppt verður í gæðingaskeiði og 150 metra skeiði. Á ráslistum eru þekktir vekringar, og einnig minna þekktir.
Sá frægasti á listanum er án efa stóðhesturinn Kiljan frá Steinnesi, sem er skráður reiðskjóti Þorvaldar Árna Þorvaldssonar í gæðingaskeiði. Spennandi að sjá hvort Kiljan bætir einni rós enn í hnappagatið á vettvangi hestaíþróttanna. Annar, ekki mikið minna frægur, er Ás frá Ármóti, reiðskjóti Johns Sigurjónssonar. Ás hefur þegar náð úrvals árangri í gæðingakeppni.
En frægari fyrir flýti eru Flosi frá Keldudal, Vera frá Þóroddsstöðum, Gríður frá Kirkjubæ, Freyðir frá Hafsteinsstöðum, Hnikar frá Ytra-Dalsgerði, Gjálp frá Ytra-Dalsgerði, Óðinn frá Búðardal, Prins frá Efri-Rauðalæk og fleiri. Semsagt: Allt fullt af fljótum vekringum og snjöllum skeiðknöpum á Ármóti á laugardaginn.
Gæðingaskeið
1 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Vera frá Þóroddsstöðum
2 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Trostan frá Auðsholtshjáleigu
3 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Korði frá Kanastöðum
4 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Hringur frá Fossi
5 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Friður frá Miðhópi
6 Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Týr frá Litla-Dal
7 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Flosi frá Keldudal
8 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Bergþór frá Feti
9 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Minning frá Ketilsstöðum
10 Viðar Ingólfsson Hrímnir Már frá Feti
11 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Logadís frá Syðra-Garðshorni
12 Elvar Þormarsson Spónn.is Gjafar frá Þingeyrum
13 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Ás frá Ármóti
14 Ragnar Tómasson Árbakki / Norður-Götur Gríður frá Kirkjubæ
15 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Kiljan frá Steinnesi
16 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Völur frá Árbæ
17 Artemisia Bertus Hrímnir Dynfari frá Steinnesi
18 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Ársól frá Bakkakoti
19 Sigurður Sigurðarson Lýsi Freyðir frá Hafsteinsstöðum
20 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Fálki frá Tjarnarlandi
21 Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Falur frá Þingeyrum
150m skeið
1 1 Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Everest frá Borgarnesi
2 1 Daníel Ingi Smárason Hrímnir Blængur frá Árbæjarhjáleigu
3 2 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Hnikar frá Ytra-Dalsgerði
4 2 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gjálp frá Ytra-Dalsgerði
5 3 Elvar Þormarsson Spónn.is Blossi frá Skammbeinsstöðum
6 3 Artemisia Bertus Hrímnir Perla frá Skriðu
7 4 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Ársól frá Bakkakoti
8 4 Sigurður Sigurðarson Lýsi Drift frá Hafsteinsstöðum
9 5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Lilja frá Dalbæ
10 5 Ragnar Tómasson Árbakki / Norður-Götur Gríður frá Kirkjubæ
11 6 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Óðinn frá Búðardal
12 6 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Veigar frá Varmalæk
13 7 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Gjósta frá Prestsbakka
14 7 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Zelda frá Sörlatungu
15 8 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Vera frá Þóroddsstöðum
16 8 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Smári frá Kollaleiru
17 9 Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Prins frá Efri-Rauðalæk
18 9 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Funi frá Hofi
19 10 Viðar Ingólfsson Hrímnir Snarpur frá Nýjabæ
20 10 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Birtingur frá Selá
21 10 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Felling frá Hákoti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH