Þjálfun og þrek
Guðrún Stefánsdóttir, lektor við Hólaskóla, vinnur nú að doktorsritgerð í þjálfunarlífeðlisfræði hrossa.
Vetrarmót í hestaíþróttum eru nú að hefjast og nokkur hafa þegar farið fram. Á Íslandi er hefð fyrir því að reiðhestar fái haustfrí í nokkra mánuði. Keppni í hestaíþróttum nýtur hins vegar vaxandi vinsælda og eftir því sem keppnistímabilið hefur lengst hefur keppnisfólk stytt þessi frí, en þó mismikið. Ýmsir spyrja sig þó að því hvort við förum of geyst og séum að keppa á hestum sem eru ekki komnir í nægilega þjálfun.
Í fyrsta tölublaði Hestablaðsins, sem kemur út á morgun 31. janúar, er viðtal við Guðrúnu Stefánsdóttir, lektor við Hólaskóla, en hún vinnur nú að doktorsritgerð um þjálfunarlífeðlisfræði hrossa. Í viðtalinu koma fram ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem stefna með hross í keppni og eða lengri reiðtúra og ferðalög á hrossum.
Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH