Albróðir Klerksins

  • 21. desember 2011
  • Fréttir
Stormur [yngri] frá Bjarnanesi í tamningu hjá Eyjólfi

Klerkur frá Bjarnanesi er tvímælalaust einn af umtalaðri stóðhestum síðari ára. Hann vakti snemma athygli fyrir ýktan fótaburð og hefur undanfarin ár staðið framarlega í keppni í B flokki og fjórgangsgreinum í hestaíþróttum hjá Eyjólfi Þorsteinssyni, tamningamanni í Sörla. Hann var í A úrslitum klárhesta á LM2011.

Klerkur er undan Snældu frá Bjarnanesi, sem er ein af hæst dæmdu klárhryssum landsins, og Glampa frá Vatnsleysu. Framganga og fas Klerks kom því ekki á óvart þegar hann var taminn.

Það eru kannski ekki allir sem vita að Klerkur á sér albróður. Sá heitir Stormur frá Bjarnanesi (í höfuð móðurafa síns). Hann er á fjórða vetur og er nú í tamningu hjá nefndum Eyjólfi. Stormur fer vel af stað, rúllar á tölti og brokki, þægur og auðveldur.

„Þetta er mjög notalegur foli, líklega þægasta og auðveldasta trippi sem ég hef tamið. Hann er stærri og fallegri en Klerkur, en hann er rétt að rúlla í gang og allt of snemmt að spá nokkru um framhaldið,“ segir Eyjólfur.

Ræktandi og eigandi þeirra Klerks og Storms er Olgeir Karl Ólafsson, sjómaður og smábóndi í Nesjum í Hornafirði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link