Ríkharður Flemming sigurvegari kvöldsins!
Í kvöld fór fram fimmgangur í Equsana deildinni í Samskipahöllinni í Spretti. Margir knapar mættu á hrossum úr eigin ræktun. Þar af voru fimm af sjö knöpum í úrslitum á heimaræktuðum hestum.
Ríkharður Flemming Jensen stóð að lokum uppi sem sigurvegari á hesti sínum Myrkva frá Traðarlandi en þeir áttu glæsilega spretti á skeiði í úrslitunum, sem tryggði þeim sigur. Í öðru sæti varð Aasa Ljungberg á Árdísi frá Litlalandi og í því þriðja Arnar Heimir Lárusson á Flosa frá Búlandi.
Það var lið Sverris sem stóð uppi sem stigahæsta lið kvöldsins en það voru þau Sverrir Sigurðsson, Jóhann Albertsson og Kolbrún Grétarsdóttir sem riðu fyrir liðið í kvöld.
Næsta keppni í Equsana deildinni er slaktaumatölt og skeið.
Við munum birta stöðuna í liða- og einstaklingskeppni þegar þær berast. Við minnum á þáttinn á Stöð 2 Sport næsta miðvikudagskvöld þar sem keppninni verða gerð góð skil en þátturinn er samstarfsverkefni Eiðfaxa og Stöð 2 Sport.
Niðurstöður kvöldsins.
| Fimmgangur F2 | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Svanhildur Hall | Þeyr frá Holtsmúla 1 | 6,33 |
| 2 | Ríkharður Flemming Jensen | Myrkvi frá Traðarlandi | 6,23 |
| 3 | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Árdís frá Litlalandi | 6,17 |
| 4 | Sverrir Sigurðsson | Drift frá Höfðabakka | 6,13 |
| 5 | Erla Björk Tryggvadóttir | Mári frá Hvoli II | 6,07 |
| 6 | Arnar Heimir Lárusson | Flosi frá Búlandi | 6,03 |
| 7 | Petra Björk Mogensen | Björk frá Barkarstöðum | 6,00 |
| 8 | Helena Ríkey Leifsdóttir | Júní frá Reykjavík | 5,93 |
| 9 | Katrín Sigurðardóttir | Haukur frá Skeiðvöllum | 5,90 |
| 10 | Jóhann Albertsson | Sinfónía frá Gauksmýri | 5,87 |
| 11-12 | Kolbrún Grétarsdóttir | Karri frá Gauksmýri | 5,83 |
| 11-12 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | Prins frá Vatnsleysu | 5,83 |
| 13-15 | Sigurður Kolbeinsson | Flosi frá Melabergi | 5,80 |
| 13-15 | Hulda Finnsdóttir | Játning frá Vesturkoti | 5,80 |
| 13-15 | Vilborg Smáradóttir | Sónata frá Efri-Þverá | 5,80 |
| 16-17 | Sigurður Halldórsson | Gustur frá Efri-Þverá | 5,77 |
| 16-17 | Jóhann Ólafsson | Ísafold frá Velli II | 5,77 |
| 18 | Hermann Arason | Vörður frá Vindási | 5,60 |
| 19 | Kristín Ingólfsdóttir | Tónn frá Breiðholti í Flóa | 5,57 |
| 20-23 | Hafdís Arna Sigurðardóttir | Kraftur frá Breiðholti í Flóa | 5,53 |
| 20-23 | Trausti Óskarsson | Hrymur frá Strandarhöfði | 5,53 |
| 20-23 | Sabine Marianne Julia Girke | Byrjun frá Akurgerði | 5,53 |
| 20-23 | Þórunn Hannesdóttir | Nútíð frá Flagbjarnarholti | 5,53 |
| 24 | Gunnar Eyjólfsson | Brunnur frá Brú | 5,40 |
| 25-27 | Birgitta Dröfn Kristinsdóttir | Spaði frá Kambi | 5,30 |
| 25-27 | Konráð Axel Gylfason | Særós frá Álfhólum | 5,30 |
| 25-27 | Sigurlaugur G. Gíslason | Forsetning frá Miðdal | 5,30 |
| 28-29 | Ida Thorborg | Salka frá Hestasýn | 5,27 |
| 28-29 | Þorvarður Friðbjörnsson | Kveikur frá Ytri-Bægisá I | 5,27 |
| 30 | Rakel Sigurhansdóttir | Dögun frá Mosfellsbæ | 5,23 |
| 31 | Kristín Hermannsdóttir | Rauðhetta frá Hofi I | 5,00 |
| 32 | Sigurður Breiðfjörð Sigurðsson | Sigurdóra frá Heiði | 4,93 |
| 33 | Hlynur Þórisson | Tildra frá Kjarri | 4,90 |
| 34 | Elísa Benedikta Andrésdóttir | Týr frá Hólum | 4,87 |
| 35 | Viggó Sigursteinsson | Kjarkur frá Steinnesi | 4,83 |
| 36 | Rúrik Hreinsson | Magni frá Þingholti | 4,80 |
| 37 | Sævar Örn Sigurvinsson | Fjöður frá Hrísakoti | 4,63 |
| 38 | Ragnar Bragi Sveinsson | Stjarni frá Laugavöllum | 4,27 |
| 39 | Jóna Margrét Ragnarsdóttir | Völsungur frá Hamrahóli | 4,23 |
| 40 | Edda Hrund Hinriksdóttir | Skrýtla frá Árbakka | 4,07 |
| 41 | Rósa Valdimarsdóttir | Lás frá Jarðbrú 1 | 3,93 |
| 42 | Björgvin Sigursteinsson | Forseti frá Söðulsholti | 3,70 |
| 43 | Björn Þór Björnsson | Karitas frá Langholti | 0,63 |
| 44-45 | Hannes Sigurjónsson | Halla frá Kverná | 0,00 |
| 44-45 | Kristinn Skúlason | Mábil frá Votmúla 2 | 0,00 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Ríkharður Flemming Jensen | Myrkvi frá Traðarlandi | 6,57 |
| 2 | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Árdís frá Litlalandi | 6,50 |
| 3 | Arnar Heimir Lárusson | Flosi frá Búlandi | 6,36 |
| 4 | Svanhildur Hall | Þeyr frá Holtsmúla 1 | 6,31 |
| 5 | Petra Björk Mogensen | Björk frá Barkarstöðum | 6,05 |
| 6 | Sverrir Sigurðsson | Drift frá Höfðabakka | 5,88 |
| 7 | Erla Björk Tryggvadóttir | Mári frá Hvoli II | 5,43 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH