Meistaradeild KS – Staðan í liða- og einstaklingskeppni

  • 23. febrúar 2020
  • Fréttir

Lið Þúfna fékk flest stig í gæðingafimi. Ljósmyndari: Helena Rut

Nú er lokið tveimur keppniskvöldum í Meistaradeild KS í hestaíþróttum. Þann 5 febrúar var keppt í slaktaumatölti þar sem Fanney Dögg Indriðadóttir sigraði á Trygglind frá Grafarkoti. Þá var keppt í gæðingafimi þann 19.febrúar og þar var það Gísli Gíslason sem stóð uppi sem sigurvegari á Trymbli frá Stóra-Ási.

Framundan eru þrjú keppniskvöld en á þeim verður keppt í fjórum greinum. Næsta mót fer fram 4.mars þegar keppt er í fjórgangi. Nú mun keppnin fara fram í Léttishöllinni á Akureyri. Þá verður keppt í fimmgangi þann 18.mars í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki lokakvöldið er á sama stað þann 3.apríl þegar keppt er í tölti og flugskeiði í gegnum höllina.

Hægt verður að nálgast beina útsendingu á vef Eiðfaxa frá öllum þessum kvöldum.

Nóg er eftir af stigum í pottinum en það er lið Þúfna sem tekið hefur töluvert afgerandi forystu í liðakeppninni en þau eru 41,5 stigi á undan næsta liði Hrímni.

Í einstaklingskeppninni leiðir Mette Mannseth með 50 stig.

Það verður spennandi að fylgjast með Meistaradeild KS í vetur og þá ekki síst spennandi liða- og einstaklingskeppni

Liðakeppni

Þúfur – 132 stig

Hrímnir  – 90,5 stig

Regulator Complete/Skáney – 89 stig

Kerckhaert – 73,5 stig

Leiknisliðið – 64,5 stig

Equinics – 62 stig

Syðra – Skörðugil / Weierholz – 59,5 stig

Íbishóll – 50 stig

 

Einstaklingskeppni

  1. Mette Mannseth – 50 stig
  2. Gísli Gíslason Þúfur – 43 stig
  3. Finnbogi Bjarnason – 40 stig
  4. Elvar Logi Friðriksson – 35 stig
  5. Barbara Wenzl – 32 stig
  6. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir – 31 stig
  7. Fanney Dögg Indriðadóttir – 28 stig
  8. Haukur Bjarnason – 27 stig
  9. Artemisia Bertus – 25 stig
  10. 10.-11. Guðmar Freyr Magnússon  – 24 stig
  11. 10.-11. Randi Holaker – 24 stig
  12. Þórarinn Eymundsson – 22 stig
  13. Sina Scholz – 21 stig
  14. Bjarni Jónasson – 20 stig

15.17.Hörður Óli Sæmundarson – 18 stig

15.- 17. Magnús Bragi Magnússon – 18 stig

15.- 17. Líney María Hjálmarsdóttir – 18 stig
18.- 19. Þórdís Inga Pálsdóttir – 17 stig
18.- 19. Ástríður Magnúsdóttir – 17 stig
20.- 21. Vignir Sigurðsson – 16 stig
20.- 21. Sigrún Rós Helgadóttir – 16 stig

  1. Agnar Þór Magnússon – 14 stig
  2. Brynja Kristinsdóttir – 13 stig
  3. Viktoría Eik Elvarsdóttir – 10 stig

25.-26. Vera Schneiderchen – 8 stig

25.-26. Þorsteinn Björnsson – 8 stig

  1. Anna Herdís Sigurbjartsdóttir – 7 stig
  2. Arndís Björk Brynjólfsdóttir – 6 stig
  3. Elvar Einarsson -5 stig
  4. Konráð Valur Sveinsson 4 stig

31.-32. Hannes Brynjar Sigurgeirsson – 2 stig

31.-32. Finnur Jóhannesson – 2 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link