Meistaradeild Líflands og æskunnar – Sætaröðun dómara þurfti til!
Verðlaunahafar í A-úrslitum ljósmynd: Ólafur Ingi Ólafsson
Annað mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram í gær sunnudaginn 23.febrúar í Samskipahöllinni í Spretti.
Í deildinni keppa 10 lið sem hvert hefur á að skipa fjórum knöpum, alls tóku 38 knapar þátt í fimmgangnum, margar góðar sýningar sáust og ljóst er að framtíðin er björt í íslenskum hestaíþróttum.
Eftir forkeppni leiddu þau Glódís Rún Sigurðardóttir á Eld frá Hrafnsholti og Kristófer Darri Sigurðsson á Vorboða frá Kópavogi með einkunnina 6,30.
Keppt er bæði í A-úrslitum og B-úrslitum en sigurvegari B-úrslitanna hlýtur þó ekki þátttökurétt í A-úrslitum.
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sigraði keppni í B-úrslitum með glæsilega einkunn, 6,60. Hann sat hryssuna Návist frá Lækjamóti.
í A-úrslitum var keppnin spennandi og voru þau Védís Huld Sigurðardóttir á Elvu frá Miðsitju og Benedikt Ólafsson á Leiru-Björk frá Naustum III, með sömu einkunn þegar öllum atriðum var lokið. Því þurfti sætaröðun dómara til að skera úr um sigurvegara og var það Benedikt sem hafði betur.

Benedikt Ólafsson ljósmynd: Ólafur Ingi Ólafsson
Stigahæsta liðið var lið Hrímnis.L

Lið Hrímnis Ljósmynd: Ólafur Ingi Ólafsson
Allar Niðurstöður
| Fimmgangur F1 | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1-2 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Eldur frá Hrafnsholti | 6,30 |
| 1-2 | Kristófer Darri Sigurðsson | Vorboði frá Kópavogi | 6,30 |
| 3 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Björk frá Barkarstöðum | 6,27 |
| 4-5 | Védís Huld Sigurðardóttir | Elva frá Miðsitju | 6,20 |
| 4-5 | Benedikt Ólafsson | Leira-Björk frá Naustum III | 6,20 |
| 6 | Jón Ársæll Bergmann | Álfrún frá Bakkakoti | 6,10 |
| 7 | Arnar Máni Sigurjónsson | Púki frá Lækjarbotnum | 6,00 |
| 8 | Egill Már Þórsson | Stormur frá Björgum 4 | 5,93 |
| 9 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Sæmundur frá Vesturkoti | 5,90 |
| 10-11 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Návist frá Lækjamóti | 5,87 |
| 10-11 | Matthías Sigurðsson | Kötlukráka frá Dallandi | 5,87 |
| 12 | Þórey Þula Helgadóttir | Sólon frá Völlum | 5,67 |
| 13 | Arndís Ólafsdóttir | Dáð frá Jórvík 1 | 5,57 |
| 14 | Kristján Árni Birgisson | Dökkva frá Kanastöðum | 5,53 |
| 15-16 | Þorvaldur Logi Einarsson | Dalvar frá Dalbæ II | 5,50 |
| 15-16 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Myrkvi frá Traðarlandi | 5,50 |
| 17-18 | Sigrún Högna Tómasdóttir | Sirkus frá Torfunesi | 5,37 |
| 17-18 | Sara Dís Snorradóttir | Engill frá Ytri-Bægisá I | 5,37 |
| 19 | Signý Sól Snorradóttir | Þokkadís frá Strandarhöfði | 5,23 |
| 20 | Sigurður Steingrímsson | Ýmir frá Skíðbakka I | 5,20 |
| 21 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Þórvör frá Lækjarbotnum | 5,07 |
| 22-24 | Glódís Líf Gunnarsdóttir | Gyðja frá Læk | 4,97 |
| 22-24 | Natalía Rán Leonsdóttir | Kría frá Ólafsbergi | 4,97 |
| 22-24 | Jónas Aron Jónasson | Sæla frá Hemlu II | 4,97 |
| 25 | Bergey Gunnarsdóttir | Brunnur frá Brú | 4,67 |
| 26-27 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Blíða frá Hömluholti | 4,37 |
| 26-27 | Hekla Rán Hannesdóttir | Halla frá Kverná | 4,37 |
| 28-29 | Diljá Sjöfn Aronsdóttir | Kristín frá Firði | 4,30 |
| 28-29 | Elín Þórdís Pálsdóttir | Þekking frá Austurkoti | 4,30 |
| 30 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir | Hind frá Dverghamri | 4,27 |
| 31 | Sveinn Sölvi Petersen | Ísabel frá Reykjavík | 4,20 |
| 32 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Prýði frá Dæli | 4,10 |
| 33 | Anna María Bjarnadóttir | Tign frá Eystra-Fróðholti | 3,90 |
| 34 | Erika J. Sundgaard | Iðunn frá Melabergi | 3,87 |
| 35 | Viktoría Von Ragnarsdóttir | Marhildur frá Reynisvatni | 3,80 |
| 36 | Kristín Hrönn Pálsdóttir | Aska frá Norður-Götum | 3,53 |
| 37-38 | Patrekur Jóhann Kjartansson | Svalur frá Syðri-Úlfsstöðum | 0,00 |
| 37-38 | Guðný Dís Jónsdóttir | Pipar frá Ketilsstöðum | 0,00 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 6 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Návist frá Lækjamóti | 6,60 |
| 7 | Jón Ársæll Bergmann | Álfrún frá Bakkakoti | 6,31 |
| 8 | Egill Már Þórsson | Stormur frá Björgum 4 | 6,29 |
| 9 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Sæmundur frá Vesturkoti | 6,26 |
| 10 | Arnar Máni Sigurjónsson | Púki frá Lækjarbotnum | 5,83 |
| 11 | Matthías Sigurðsson | Kötlukráka frá Dallandi | 5,67 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1-2 | Benedikt Ólafsson | Leira-Björk frá Naustum III | 6,33 |
| 1-2 | Védís Huld Sigurðardóttir | Elva frá Miðsitju | 6,33 |
| 3 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Björk frá Barkarstöðum | 6,31 |
| 4 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Eldur frá Hrafnsholti | 5,93 |
| 5 | Kristófer Darri Sigurðsson | Vorboði frá Kópavogi | 4,79 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH