Viðar og Tumi sigruðu forkeppni í Tölti meistaraflokk.
Hörku keppni er lokið í Tölti Meistaraflokk. Keppnin var sannkölluð veisla fyrir áhorfendur enda voru tölurnar háar…
Eins og stundum fyrr, sigraði Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra Hofi keppnina í kvöld en enginn vafi er á því að hart verður sótt að þeim félögum í úrslitunum.
Það verða 9 knapar í A úrslitum vegna þess að fjórir urðu jafnir í fimmta sæti og svo kemur einn úr B úrslitunum. Þessir eru komnir inn í A úrslitin nú þegar:
Viðar Ingólfsson Tumi frá Stóra-Hofi 8,57
Sigursteinn Sumarliðason Alfa frá Blesastöðum 1A 8,33
Sigurður Sigurðarson Kjarnorka frá Kálfholti 8,27
Erla Guðný Gylfadóttir Erpir frá Mið-Fossum 8,0
Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 1 7,93
Sigurbjörn Bárðarson Jarl frá Mið-Fossum 7,93
Hulda Gústafsdóttir Sveigur frá Varmadal 7,93
Jakob Svavar Sigurðsson Árborg frá Miðey 7,93
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH