Kynning á Kortasjá
Sæmundur Eiríksson höfundur Kortasjáarinnar verður með kynningu á Kortasjánni miðvikudaginn 29. apríl kl. 20 í Harðarbóli, Mosfellsbæ.
Í Kortasjánni eru yfir 10.000km af reiðleiðum, skrár yfir skála og fleira og fleira. Þeir sem eru að huga að hestaferðum í sumar ættu ekki að láta þessa kynningu fram hjá sér fara, sem og þeir sem hafa áhuga á reiðleiðum, hestaferðum og fleiru.
Frítt inn og heitt kaffi á könnunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fræðslunefnd Harðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH