Æska Suðurlands – Ný dagsetning og opið fyrir skráningar
Nú er komin ný dagsetning fyrir 1. mót Æsku Suðurlands. Mótið mun fara fram sunnudaginn 15. mars í reiðhöllinni á Flúðum. Húsið opnar kl. 9.00 og mótið hefst á smala polla klukkan 11.00, í kjölfarið keppa svo börn og unglingar smalabrautinni.
Eftir hlé verður keppni í þrígangi barna og fjórgangi unglinga. Skráningar sem voru komnar inn þegar ákveðið var að fresta mótinu halda sér en ef einhverjir vilja draga sig frá keppni skal hafa samband á netfangið [email protected], þeir geta þá fengið endurgreitt.
Það er opið fyrir skráningar og verður til 12.mars. skráningargjöld fyrir polla er 500 kr og eldri flokka 1500 kr. Í Sportfeng heita greinarnar: Smali pollar: pollatölt Smali barnaflokkur: 100m skeið barnaflokkur. Smali unglinga: 100m skeið unglingafl. Þrígangur barna: tölt T3 Fjórgangur unglinga
Sjáumst hress á léttu og skemmtilegu nótunum, Æskulýðsnefnd Loga og Smára
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH