Samkomur hestamanna í hættu? – Fyrstu innanlandssmit af Covid19

  • 6. mars 2020
  • Fréttir

Nú í dag hafa borist tilkynningar um það að 43 kórónuveirusmit tilfelli séu staðfest hér á landi og þar af tvö innanlandssmit. Því er búið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna.

Margar stórar samkomur eru framundan meðal hestamanna og er ein þeirra haldin í nafni Eiðfaxa, sjálf Stóðhestaveislan, sem hefur verið einn fjölsóttasti viðburður hestamennskunnar undanfarin ár en á hana hafa mætt um þúsund manns.

Við hjá Eiðfaxa munum því fylgjast grannt með gangi mála og þróun þessarar veiru og í framhaldinu taka upplýsta ákvörðun um hvort halda eigi stórar samkomur sem þessa. En fram að þeim tíma verður undirbúningi haldið áfram.

Vonandi gengur faraldurinn yfir landið áður en sumra tekur svo hestamenn geti glaðst á Landsmóti Hestamanna á Rangárbökkum í sumar.

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sóttvarnarlæknis vegna samkomna og er hverjum hollt að lesa þær yfir.

Leiðbeiningar sóttvarnarlæknir varðandi samkomur

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur ítrekað að ekki hefur verið lýst yfir samkomubanni af yfirvöldum hér á landi.

Engu að síður er einkar mikilvægt að fólk sem hefur verið á skilgreindum hættusvæðum virði ráðleggingar um sóttkví, en í þeim felst að forðast samneyti við aðra einstaklinga í 14 daga.

Á mannamótum er einkar mikilvægt að til staðar sé aðstaða fyrir handþvott og handsprittun. Mælst er til að fólk noti aðrar kveðjur en handaband og faðmlög.

Framundan eru nokkrir stórir íþróttaviðburðir og vill ÍSÍ minna sambandsaðila sína á að hafa ofangreint í huga og að fylgjast áfram vel með uppfærslum á vefsíðu Embættis landlæknis.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link