Sunnlenskir hrossaræktendur hvattir til að mæta
Stjórn hrossaræktarsamtaka Suðurlands vilja hvetja félagsmenn sína sem og aðra sem áhuga hafa á hrossarækt að fjölmenna á fund sem haldinn verður í Hliðskjálf í kvöld, miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30. Þar mun vera haldinn fundur um hrossarækt og hestamennsku en frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH