Fyrirlestur um rannóknir á sumarexemi í Bandaríkjunum

  • 27. október 2014
  • Fréttir
Hvers vegna er tíðni sumarexems mun hærri í hestum fæddum á Íslandi en í íslenskum hestum fæddum erlendis?

Dr. Bettina Wagner mun flytja fyrirlestur um stöðu rannsókna sinna á sumarexemi á Keldum á fimmtudaginn 30. október kl. 12.20-13.20.

Fyrirlesturinn ber titilinn: „Hvernig getur Íslenski hesturinn komið að gagni við rannsóknir á óarfbundnum áhrifum frá móður og umhverfi á þróun ofnæmis?“  (Maternal non-genetic and environmental effects on allergy development – and how Icelandic Horses can help with the approach).

Dr. Bettina Wagner er prófessor við Dýrasjúkdómadeild Cornell háskóla Íþöku, Bandaríkjunum. Hún stýrir viðamiklu verkefni sem unnið er í samstarfi við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, og Matvælastofnun.
Með verkefninu á að reyna að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvers vegna er tíðni sumarexems mun hærri (35%) í hestum fæddum á Íslandi en í íslenskum hestum fæddum erlendis (5-10%)?

Rannsóknartilgátan er að sérvirk mótefni í broddmjólk hryssna sem bitnar hafa verið af smámýi  veiti afkvæmum sínum vörn gegn sumarexemi seinna á ævinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link