Stóðhestabókin – Ert þú búinn að taka frá pláss fyrir þinn hest?
Stóðhestabókin, sem síðustu ár hefur verið gefin út undir merkjum Hrossaræktar, nýtur ávallt mikilla vinsælda og er í raun staðalbúnaður á öllum kaffistofum hestamanna enda er þar að finna upplýsingar um vel á þriðja hundrað stóðhesta. Skráning er hafin í bókina og því tilvalið fyrir stóðhestaeigendur að hafa samband og taka frá pláss.
Stóðhestabókin er prentuð í rúmlega 3.000 eintökum og munu allir áskrifendur Eiðfaxa fá eintak af henni sér að kostnaðarlausu. Þá mun hún fylgja miðum á stóðhestaveislunum líkt og undanfarin ár
Verð fyrir heilsíðuauglýsingu í bókina er 40.000 kr. +vsk.
Tryggðu það að hrossaræktendur viti hvernig á að nálgast þinn stóðhest og sendu okkur línu sem fyrst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH