Þriðji þátturinn um Equsana deildina á Stöð 2 Sport í kvöld!
Þriðja keppniskvöldið í Equsana deildinni fór fram í Samskipahöllinni síðastliðið fimmtudagskvöld en þá var keppt í slaktaumatölti og flugskeiði. Fjallað verður um keppniskvöldið í sérstökum þætti á Stöð 2 Sport klukkan 18.40 í kvöld.
Stöð 2 Sport hefur unnið að þáttum um þessa skemmtilegu deild í vetur í samstarfi við Eiðfaxa.
Brot úr þætti kvöldsins má nálgast á vefsíðu Vísis með því að smella hér
Síðasta keppniskvöldið í deildinni fer fram fimmtudagskvöldið 17.mars þegar keppt verður í tölti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH