Stóðhestaveislum aflýst
Í ljósi þess að Covid-19 veiran hefur nú þegar náð mikilli útbreiðslu og almannavarnir hafa lýst yfir hættuástandi, hefur verið tekin sú ákvörðun að aflýsa stóðhestaveislum sem fara áttu fram í nafni Eiðfaxa 4.apríl í Samskipahöllinni og 18.apríl í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.
Biblía hrossaræktandans, Stóðhestabókin, mun þó að sjálfsögðu verða gefin út og fá áskrifendur Eiðfaxa hana sér að kostnaðarlausu en aðrir munu geta nálgast hana í lausasölu og verða lausasölustaðir auglýstir síðar þegar það styttist í útgáfu bókarinnar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH