Ís-landsmóti á Svínavatni aflýst
Í ljósi aðstæðna og samkomubanns sem nýverið var sett á, hafa skipuleggjendur Ís-landsmóts á Svínavatni tekið þá ákvörðun að aflýsa mótinu sem halda átti nú um helgina. Bætist þar með enn í hóp þeirra viðburða hestamanna sem þurft hefur að aflýsa um land allt og líkur á að mótahald og samkomur verði í algjöru lágmarki á næstu vikum. Vonandi verður þó hægt að taka upp þann þráð þegar vora tekur svo hestar og knapar geti á ný glatt augað á þeim viðburðum sem þá eru áformaðir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH