Ráslistar í Meistaradeild KS
Framundan er slaktaumatölt í meistaradeild KS í hestaíþróttum en síðast var keppt í gæðingafimi svo að þetta er annað mótið í þessari spennandi mótaröð. Slaktaumatöltið fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki miðvikudaginn 27.febrúar og keppni hefst klukkan 19:00. Húsið opnar klukkan 18:00.
Ísólfur Líndal sigraði gæðingafimina á Krumma frá Höfðabakka og mætir hann aftur til leiks á honum. Elvar Logi Friðriksson sem varð annar í gæðingafimi á Grifflu frá Grafarkoti mætir einnig á henni sem og Fanney Dögg Indriðadóttir sem varð í fjórða sæti síðast en hún mætir á Trygglind frá Grafarkoti.
Ljóst er á ráslistanum að keppnin verður spennandi og margir góðir hesta skráðir til leiks. Allir velunnarar íslenska hestsins og sér í lagi norðlenskrar hestamennsku eru hvattir til að mæta.
Ráslisti
Nr. Knapi Hestur
1 Höskuldur Jónsson Svörður frá Sámsstöðum
2 Guðmundur Karl Tryggvason Skriða frá Hlemmiskeiði 3
3 Barbara Wenzl Loki frá Litlu-Brekku
4 Finnur Jóhannesson Freyþór frá Mosfellsbæ
5 Freyja Amble Gísladóttir Fannar frá Hafsteinsstöðum
6 Sigrún Rós Helgadóttir Halla frá Kverná
7 Elvar Logi Friðriksson Griffla frá Grafarkoti
8 Árný Oddbjörg Oddsdóttir Kamban frá Húsavík
9 Mette Mannseth Hryðja frá Þúfum
10 Snorri Dal Engill frá Ytri-Bægisá I
11 Bjarni Jónasson Úlfhildur frá Strönd
12 Fanndís Viðarsdóttir Krummi frá Egilsá
Hlé 15 mín
13 Líney María Hjálmarsdóttir Sjarmör frá Varmalæk
14 Guðmar Freyr Magnússon Sátt frá Kúskerpi
15 Heiðrún Ósk Eymundsdóttir Védís frá Saurbæ
16 Arnar Bjarki Sigurðarson Ötull frá Narfastöðum
17 Fanney Dögg Indriðadóttir Trygglind frá Grafarkoti
18 Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk
19 Ísólfur Líndal Þórisson Krummi frá Höfðabakka
20 Elvar Einarsson Gjöf frá Sjávarborg
21 Anna Björk Ólafsdóttir Eldey frá Hafnarfirði
22 Finnbogi Bjarnason Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli
23 Gísli Gíslason Blundur frá Þúfum
24 Viðar Bragason Lóa frá Gunnarsstöðum
Hægt er að horfa á beina útsendingu frá keppninni gegn vægu gjaldi. En útsendinguna má nálgast hér
Einstaklingskeppni
Ísólfur Líndal Þórisson 28 stig
Elvar Logi Friðriksson 26 stig
Sina Scholz 24 stig
Fanney Dögg Indriðadóttir 22 stig
Freyja Amble Gísladóttir 20 stig
Þórarinn Eymundsson 18 stig
Mette Mannseth 17,5 stig
Artemisia Bertus 17,5 stig
Elvar Einarsson 15 stig
Snorri Dal 15 stig
Þorsteinn Björnsson 15 stig
Barbara Wenzl 13 stig
Anna Björk Ólafsdottir 12 stig
Bjarni Jónasson 11 stig
Líney María Hjálmarsdóttir 9,5 stig
Árný Oddbjörg Oddsdóttir 9,5 stig
Guðmar Freyr Magnússon 7,5 stig
Sigrún Rós Helgadóttir 7,5 stig
Fanndís Viðarsdóttir 5,5 stig
Vignir Sigurðsson 5,5 stig
Pétur Örn Sveinsson 3,5 stig
Konráð Valur Sveinsson 3,5 stig
Guðmundur Karl Tryggvason 1,5 stig
Magnús Bragi Magnússon 1,5 stig
Liðakeppni
Skoies/Prestige 76 stig
Hrímnir 53,5 stig
Þúfur 48 stig
Hofstorfan 46 stig
Leiknisliðið 30,5 stig
Lið Kerckhaert 26 stig
Lið Flúðasveppa 18,5 stig
Team BYKO 12,5 stig
Dagskrá vetrarins í KS deildinni
|
Dagsetning |
Keppnisgrein |
Staðsetning |
|
13. febrúar |
Gæðingafimi |
Sauðárkrókur |
|
27. febrúar |
Slaktaumatölt |
Sauðárkrókur |
|
13. mars |
Fimmgangur |
Akureyri |
|
27. mars |
Fjórgangur |
Sauðárkrókur |
|
12. apríl |
Tölt og flugskeið |
Sauðárkrókur |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH