Gangsöm tryppi undan Leistu-

  • 2. nóvember 2011
  • Fréttir
Gangsöm tryppi undan Leistu-

Leista frá Lynghóli sigraði flokk 4 vetra hryssa á Landsmót 2006 með 8,34 í aðaleinkunn.

Hún hlaut þá 8,57 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt og vilja og geðslag. Leista var undratryppi að sögn eigenda hennar, Árna Þorkelssonar og Jakobínu Jónsdóttur en tvö afkvæmi hennar eru nú komin í tamningu og sýna þau feiknarlega takta. Þetta eru Þóroddssonurinn Bjartur frá Lynghóli sem frumtaminn var af Steingrími Sigurðarsyni í fyrra og Krákssonurinn Gneisti frá Lynghóli sem nú mun vera í frumtamningu hjá Mette Mannseth og Gísla Gíslasyni á Þúfum. 

„Báðir þessir hestar eru gangsamir og mjög spennandi. Þóroddssonurinn fór afar vel af stað, hann er alhliðagengur með fótaburð og mikla mýkt og Steingrímur var geysihrifinn af honum. Krákssonurinn verður líklega meiri tölthestur en mikil mýkt er í gangi þar líka. Stefnt er á að sýna báða þessa hesta í vor en þeir hafa þó verið í notkun og gefið skemmtilega liti, Bjartur gefur rauðblesótt, sokkótt og Gneisti brúnblesótt,“ segir Árni en Leista hefur nú eignast fimm afkvæmi. „Tvær hryssur eru undan Álfi og svo kom hryssa undan Aroni frá Strandarhöfði í vor. Þetta eru allt gangsöm tryppi sem fara um á tölti, enda stendur mikið tölt að baki Leistu,“ segir Árni.
 
Í nýútkomnu 7. tbl. Eiðfaxa er forvitnast um afkvæmi nokkurra verðlaunahryssa sem nú eru í frumtamningu.
Áskrifendur geta lesið vefútgáfu blaðsins hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link