Skeiðmót Meistaradeildar

  • 23. mars 2012
  • Fréttir
Skeiðmót Meistaradeildar

Spennan er gríðarleg í Meistaradeildinni hart er barist á toppnum, það geta orðið miklar sviftingar eftir næsta mót sem haldið verður á Ármóti í dag laugardaginn 24 mars og byrjar kl 12:00. Meistaradeildin hvetur alla til að mæta og eiga góðan dag í sveitasælunni hjá hinum eina og sanna Hafliða Halldórssyni landsliðseinvaldi og upplifa sveitastemmninguna eins og hún gerist best. Spennan verður gríðarleg þar sem knaparnir leggja allt undur þegar þeir fá loksins tækifærið til að spretta úr spori úti í náttúrunni í hörku keppni.

 
Pizza Gallery verður á staðnum með nýbakaðar pizzur allan daginn,  að auki verða  léttar veitingar og að sjálfsögðu er einn á kantinum í beinni.
 
Stóðhesta happadrætti: Miðinn kostar 1.000 krónur sem gæti verið ansi ódýr folatollur undir þessa snillinga sem eru eftirfarandi,  Konsert frá Korpu, Máttur frá Leirubakka, Leiknir frá Vakurstöðum, Leonard frá Vakurstöðum bróðir Leiknis undan Aroni, Þrumufleygur frá Álfhólum og Tónn frá Melkoti. Hver veit nema að einhverjir glæsihestar verði sýndir.
 
Meistaradeildin mun ekki rukka aðgangseyrir á þetta mót.
 
Dagskrá laugardaginn 24 mars. ATH mótið hefst kl 12:00
 
Kl:  12:00 Skeið 150 metrar tveir sprettir og besti tími gildir
Kl : 13:00 Matarhlé og happadrætti
Kl : 14:00 Gæðingaskeið
 
Með kveðju,
Stjórn Meistaradeildar 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link